Sindri og félagar í góðum málum
Sindri Kristinn Ólafsson stóð milli stanga Vasalund er liðið hafði betur gegn Enskede, 2:1, í fyrri leik umspils um sæti í C-deild Svíþjóðar í dag.
Vasalund hafnaði í 13. sæti norðurhluta sænsku C-deildarinnar á meðan Enskede hafnaði í öðru sæti norðurhluta D-deildar.
Liðin mættust á heimavelli Enskede í dag og komust Sindri og félagar yfir eftir aðeins fimm mínútur. Heimamenn náðu hins vegar að jafna metin á 70. mínútu en Vaselund náði síðan að tryggja sigurinn þegar ein mínúta var eftir af venjulegum leiktíma.
Sindri og félagar eru því einu marki yfir fyrir seinni viðureign liðanna sem leikin verður á heimavelli Vasalund.
Sindri kom til Vasalund frá Keflavík fyrir tímabilið.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗