Trump kennir Biden um flugbannið

Erlent | AFP | 15.11.2026 | 14:35

Donald Trump og Joe Biden við innsetningarathöfn Trumps í fyrra.

Donald Trump og Joe Biden við innsetningarathöfn Trumps í fyrra. AFP/Chip Somodevilla

Donald Trump Bandaríkjaforseti kennir stjórn forvera síns, Joe Biden, um flugbannið sem varði í nær fimm klukkustundir í Bandaríkjunum á föstudag og raskaði innanlands- og millilandaflugi.

Í fyrstu ummælum sínum um málið frá því að bandarísk yfirvöld kyrrsettu allar flugvélar í nokkrar klukkustundir á föstudag vegna tæknilegrar uppfærslu sem fór úrskeiðis kallaði Trump stjórnun Biden-stjórnarinnar á sviði flugmála „hörmung“.

„Allt sem þeir snertu fór illa,“ skrifaði Trump á Truth Social. „Miklum fjármunum var varið óskynsamlega, sem gerði gamalt og bilað kerfi verra en það var þegar þeir hófust handa.“

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅