Trump kennir Biden um flugbannið
Erlent | AFP | 15.11.2026 | 14:35
Donald Trump Bandaríkjaforseti kennir stjórn forvera síns, Joe Biden, um flugbannið sem varði í nær fimm klukkustundir í Bandaríkjunum á föstudag og raskaði innanlands- og millilandaflugi.
Í fyrstu ummælum sínum um málið frá því að bandarísk yfirvöld kyrrsettu allar flugvélar í nokkrar klukkustundir á föstudag vegna tæknilegrar uppfærslu sem fór úrskeiðis kallaði Trump stjórnun Biden-stjórnarinnar á sviði flugmála „hörmung“.
„Allt sem þeir snertu fór illa,“ skrifaði Trump á Truth Social. „Miklum fjármunum var varið óskynsamlega, sem gerði gamalt og bilað kerfi verra en það var þegar þeir hófust handa.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗