„Sendu Ancelotti til fjandans!“
Brasilíska goðsögnin Romário hraunaði yfir Carlo Ancelotti, þjálfara brasilíska landsliðsins, eftir tap gegn Japan, 3:2, í vináttuleik þjóðanna.
Brasilía hafði lent tveimur mörkum undir snemma leiks en Vinicius Junior jafnaði síðan metin áður en Japan tryggði sigurinn á lokamínútum leiksins. Ancelotti og Raphinha fengu síðan í kjölfarið rautt spjald fyrir að kvarta yfir dómaranum þar sem þeim fannst markið ekki átt að standa.
Brasilía hefur unnið heimsmeistaramótið oftast í sögunni, eða fimm sinnum, og er óhætt að segja að liðið sé í lægð núna þar sem 24 ár eru liðin síðan Brassar komust í úrslit keppninnar.
Romário gaf frá sér langan pistil á samfélagsmiðlinum Instagram eftir leik þar sem hann gjörsamlega tætti í sig Ancelotti og sagði honum að yfirgefa liðið og það strax:
„Ancelotti, þetta er búið! Taktu dótið þitt og farðu!“
„Enginn efast um feril þinn. Þú ert einn besti þjálfari sem knattspyrnuheimurinn hefur séð, en það var hjá félagsliðunum. Með brasilíska landsliðinu hefur hingað til ekkert sést af því sem þú komst til að gera. Við þolum þetta ekki mikið lengur!“
„Viltu halda áfram að þjálfa? Snúðu þá aftur til félaganna þar sem þú skapaðir þér nafn, því brasilíska landsliðið getur ekki haldið áfram að borga fyrir að horfa upp á þetta.“
„Skilaboðin eru nú til forseta CBF, Samir Xaud. Þú ert ungur Brasilíumaður og ég trúi því að þú viljir fótboltanum okkar vel. Nú er kominn tími til að sýna að þú hafir hugrekki til að taka ákvörðun.“
„Kæri forseti! Sendu Ancelotti til fjandans!“ sagði Romário á Instagram.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗