Yfirmaður breska hersins svartsýnn – „Hættulegasti tíminn á minni lífsleið“

Pressan

Sunnudaginn 15. nóvember 2026 14:30

Sir Richard Kington. Mynd:BBC

Bretland er að dragast aftur úr evrópskum bandamönnum sínum við að takast á við „mjög svo raunverulega“ ógn sem stafar af Rússlandi. Þetta segir Sir Richard Knighton, æðsti yfirmaður breska hersins.

Í samtali við FT sagði hann að Bretland verði að „ná“ evrópskum bandamönnum sínum sem séu mun meðvitaðri um sívaxandi áhættusækni Rússa.

„Þetta er hættulegasti tíminn á minni lífsleið,“ sagði hann og bætti við að ógnin, sem stafar í grunninn frá Rússum, sé einnig alþjóðleg og fari vaxandi.

Hann sagði það mat sitt að Rússar verði sífellt áhættusæknari og að orðið „fjölþáttaógnir“ dugi ekki lengur til að dekka það sem Rússar séu að gera.

„Við erum að tala um markviss launmorð, við erum að tala um skemmdarverk, við erum að tala um tölvuárásir. Þetta eru raunverulegir hlutir sem rússneska ríkið stendur á bak við og við höfum sannanir fyrir í Evrópu og að vissu marki hér í Bretlandi,“ sagði hann.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅