Adam og Ástrós gáfu syninum sjaldgæft nafn

Adam Helgason og Ástrós Traustadóttir eru búin að skíra son sinn. Skjáskot/Instagram

Áhrifavaldaparið Ástrós Traustadóttir og Adam Helgason gáfu syni sínum nafn um helgina. Drengurinn fékk nafnið Lucas Leví Adamsson. 

Nafnið er nokkuð sjaldgæft hér á landi, en samkvæmt gögnum Hagstofu Íslands eru 29 sem bera nafnið Lucas sem 1. eiginnafn og 8 sem bera nafnið sem 2. eiginnafn. 

Lucas Leví er annað barn parsins saman, en fyrir eiga þau dótturina Nóru Náð. Fyrir átti Adam eina dóttur. 

Smartland óskar þeim til hamingju með nöfnin!

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅