Þegar faxið og bréfdúfan ein eru eftir
Fjarskipti Hver hefði trúað því að faxtækið ætti afturkvæmt? Sú var þó raunin þegar netsamskipti af ýmsu tagi lömuðust í bilun Microsoft.
Sennilega hafa flestir fundið fyrir því með einhverju móti þegar tölvuþjónusta Microsoft brást. Fyrir flesta voru óþægindin minniháttar og skammæ, en þau ógnuðu líka ýmsum innviðum. Hjá breska raforkukerfinu drógu menn fram gamla landlínusíma og faxtæki, svo rafmagnið sló ekki út.
Sú varaleið dugði þar, en faxtæki eru fágæt, heimasímarnir víða horfnir, en símkerfi marga fyrirtækja og stofnana komin í skýið. Hér á Íslandi eins og víðar urðu neyðarsímanúmer fyrir truflunum og annars staðar gat fólk ekki borgað reikningana sína, ekki vegna þess að örugg bankakerfi hafi brugðist, heldur af því að staðfestingarkóðar bárust ekki með tölvupósti.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗