Fjölgar um einn í þingflokki Viðreisnar

Jón Gnarr er í fríi.

Jón Gnarr er í fríi. mbl.is/Karítas

Þingmönnum í þingflokki Viðreisnar hefur tímabundið fjölgað um einn á meðan Jón Gnarr, sem sagði sig úr þingflokknum í síðasta mánuði, er í fríi.

Á vef Alþingis segir að Gunnar Guðjónsson sitji á þingi í stað Jóns Gnarr en hann vermdi sjötta sæti framboðslista Viðreisnar í Reykjavík suður. 

Í samtali við mbl.is staðfesti Jón að hann væri í fríi.

Hann sagði sig úr þingflokki Viðreisnar fyrir mánuði síðan en gerði við flokkinn samstarfssamning sem kveður á um samstarf og stuðning við málefni ríkisstjórnarinnar.

Alvanalegt

Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur segir það alvanalegt að varaþingmenn komi í stað þingmanna sem yfirgefið hafa þingflokk sinn. 

„Það er bara næsti maður á lista sem fyrst fær boð. Það er ekkert hægt að gera við því, ef þingmaður fer í frí eða getur ekki sinnt þingskyldum, að varamaður hans er kallaður inn,“ segir hann í samtali við mbl.is.

Því liggur fyrir að 11 þingmenn verða í þingflokki Viðreisnar næstu daga í stað 10.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅