Albert lagði upp mark á Ítalíu
Albert Guðmundsson sneri aftur á knattspyrnuvöllinn í æfingaleik Lazio gegn Mgarr United en hann hafði verið frá vegna meiðsla í rúma tvo mánuði.
Albert hafði meiðst á öxl í leik Íslands gegn Eistlandi í Þjóðadeildinni í lok september og reyndust meiðslin halda honum lengur frá keppni en gert var ráð fyrir.
Hann sneri aftur rétt fyrir helgi og var greint frá því að hann væri byrjaður að æfa aftur með liðinu rétt fyrir helgi.
Albert tók síðan þátt í æfingaleik Lazio í gær þar sem hann lagði upp mark en þá tók hann hornspyrnu sem Diogo Leite skallaði í netið:
I gol di oggi visti da vicino 👀 https://t.co/noU7oCNIh9
— S.S.Lazio (@OfficialSSLazio) November 14, 2026
Niðurstaðan var öruggur 3:0-sigur Lazio sem mætir Lecce næstu helgi og verður spurning hvort Albert spili þá fyrsta leik sinn í ítölsku deildinni síðan 19. september.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗