Segja Huang ekki starfa hjá fyrirtækinu
Tæknifyrirtækið Megaspeed International, sem hefur höfuðstöðvar í Singapúr og sætir rannsókn vegna gruns um að hafa beint örflögum frá Nvidia til Kína, greindi frá því á sunnudag að Alice Huang, sem grunuð er um njósnir, hefði hætt störfum hjá fyrirtækinu fyrir rúmu ári.
Grunur leikur á um að Megaspeed hafi hjálpað kínverskum fyrirtækjum að komast fram hjá bandarískum útflutningshöftum með því að kaupa örflögur frá Nvidia fyrir gagnaver sín í Suðaustur-Asíu og beina þeim áfram til Kína.
Fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Alice Huang, hefur verið nafngreind í bandarískum fjölmiðlum sem meintur útsendari kínversku leyniþjónustunnar sem hafi átt í ástarsambandi við Jensen Huang, einn stofnenda Nvidia, sem sagði af sér sem forstjóri fyrirtækisins á fimmtudag.
Þess ber að geta að Alice Huang og Jensen Huang eru ekki skyld þrátt fyrir að bera sama ættarnafn.
„Alice Huang lét formlega af störfum hjá Megaspeed frá og með 30. ágúst 2025 og gegnir nú engu hlutverki hjá fyrirtækinu,“ sagði Megaspeed í svari við fyrirspurn AFP. „Megaspeed tjáir sig ekki um persónuleg málefni og einkamál Huang.“
Vísa ásökunum á bug
Stjórnvöld í Kína hafa þá vísað ásökununum um njósnir á bug.
Jensen Huang viðurkenndi framhjáhald í bréfi til starfsmanna Nvidia 8. nóvember, þar sem konan var ekki nafngreind. Hann sagði af sér nokkrum dögum síðar.
Stjórn Nvidia hefur sagst ætla að rannsaka málið og formenn þriggja nefnda Bandaríkjaþings hafa óskað eftir því að Jensen Huang mæti á lokaðan fund 18. nóvember.
Megaspeed sagðist í svarinu til AFP „stunda lögmæta og löglega starfsemi“ og að fyrirtækinu væri kunnugt um fréttir fjölmiðla „sem innihalda fullyrðingar um starfsemi okkar, aðfangakeðju og alþjóðlegan rekstur sem ekki eru studdar sannreynanlegum gögnum“.
Má ekki koma til Singapúr
Lögreglan í Singapúr hefur sagt að rannsókn á Megaspeed standi yfir.
Yfirvöld greindu einnig frá því að þau hefðu í febrúar bannað Alice Huang að koma aftur til borgríkisins eftir að hún veitti rangar upplýsingar við rannsókn á Megaspeed.
Hún var þó ekki rannsökuð vegna njósna.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗