5.000 skref á dag geta dugað til að vinna gegn hjartasjúkdómum
Pressan
Sunnudaginn 15. nóvember 2026 13:30
Það er hollt að fara í göngutúr. Mynd:Getty
Þú hefur kannski fengið að heyra að þú eigir að hreyfa þig meira. Fyrir suma er þetta nú bara svona væg ábending sem þeir geta valið að taka mark á eða ekki. En fyrir hjartað er þetta mikilvægur boðskapur.
Fremstu hjartalæknar heims eru þeirrar skoðunar að læknar eigi að ávísa hreyfingu eins og lyfjum þegar þeir meðhöndla hjartasjúkdóma. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá samtökum bandarískra hjartalækna sem var birt um miðjan október í vísindaritinu JACC.
Í henni kemur fram að hreyfing sé ein besta meðferðin, sem til er, en að læknar noti hana allt of lítið í daglegri meðferð hjartasjúklinga.
„Mikilvægasti boðskapurinn er að smávegis hreyfing er betri en engin,“ sagði Jonathan N. Myers, formaður starfshópsins sem skrifaði yfirlýsinguna.
5.000 til 7.000 skref gera meira gagn en margir telja
Margir hafa sett sér það markmið að ganga að minnsta kosti 10.000 skref á dag en í fyrrgreindri yfirlýsingu hjartalæknanna kemur fram að það þurfi ekki að ganga svo mörg skref til að líkaminn njóti góðs af.
5.000 til 7.000 skref á dag hafa sýnt sig að draga mjög úr líkunum á andláti af völdum hjartaáfalls eða hjartasjúkdóma og af öðrum orsökum hjá fullorðnum.
Hjartalæknarnir leggja áherslu á að það að vera í lélegu formi sé áhættuþáttur á borð við reykingar, of háan blóðþrýsting, of hátt blóðfitugildi og sykursýki.
Hreyfing er ekki viðbót við lyf, hún er meðferð í sjálfu sér.
Ráðleggingar hjartalæknanna beinast að kransæðasjúklingum, sjúklingum með hjartabilun, of háan blóðþrýsting, í ofþyngd og marga aðra sjúkdóma. Einnig nefna þeir fólk sem fæddist með hjartagalla.
Læknarnir mæla með blöndu af úthaldsæfingum og styrktaræfingum fyrir flesta. Einnig mæla þeir með jafnvægis- og lipurðaræfingum, sérstaklega fyrir eldra fólk.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗