Sema Erla tjáir sig um málið gegn sér og segir trúðaleikhúsið opið öllum: „Húsið mun þó ekki rýma öll þau sem hafa gerst sek“

Aðalmeðferð í máli sem Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu höfðaði gegn Semu Erlu Serdaroglu, forsvarsmanni samtakanna Solaris, fer fram þriðjudaginn 24. nóvember í Héraðsdómi Reykjavíkur. Sema Erla er ákærð fyrir brot á lögum um opinberar fjársafnanir. Málið varðar landssöfnun fyrir Palestínu sem fór fram snemma árs 2024.

Sjá einnig: Sema neitar sök í fjársöfnunarmálinu og sendir pillu á Einar S. Hálfdánarson

„Málið varðar landssöfnun fyrir Palestínu sem fór fram snemma árs 2024 og leiddi til þess að hátt í 200 einstaklingar, að mestu konur og börn, komust á lífi undan þjóðarmorði á Gaza,“

segir Sema Erla sem tjáir sig um málið í langri færslu og segir söfnunina hafa verið í nafni Solaris en fjölda fólks komið að verkefninu með fjölbreyttum hætti og lagt sitt af mörkum við að bjarga mannslífum.

„Ég er svo persónulega ákærð fyrir það að söfnunin hafi ekki verið tillkynnt til sýslumanns fyrr en eftir að hún hófst en ekki áður en hún hófst.“ 

„Það ætti að vera flestum ljóst að með þessari ákæru er farið langt fram úr öllu sem hægt er að kalla meðalhóf og jafnræði. Ákæran er hluti af umfangsmeira kærumáli sem felur í sér glórulausar ásakanir, eins og til dæmis um fjármögnun hryðjuverkastarfsemi, og það er seilst svo langt í að reyna að koma mér fyrir kattarnef að þetta væri allt saman hlægilegt ef þetta væri ekki eins alvarlegt og komið hefur í ljós.“

Með réttarstöðu sakbornings í rúm tvö og hálft ár

Sema Erla hefur verið með réttarstöðu sakbornings síðan kæran var lögð fram í mars 2024, og segist alla tíð hafa haldið því fram að málið sé persónulegt og einkennist af pólitískum ofsóknum. „Það sást strax þegar í ljós kom hver það var sem lagði fram kæruna, innmúraður sjálfstæðismaður og hæstaréttarlögmaður sem hugnaðist illa að við niðurlægðum stjórnvöld með því að gera það sem þau neituðu að gera, að koma fólki undan þjóðernishreinsunum síonista. Ef þetta hefði verið enhver með minni völd og tengsl hefði þessi kæra endað í ruslinu, þar sem hún á heima.“

Sema Erla segir þetta sjást á því að málið hefur tvisvar sinnum verið fellt niður af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en verið sent aftur til rannsóknar af ríkissaksóknara eftir að sá sem í upphafi kærði söfnunina kærði niðurfellinguna til ríkissaksóknara. „Þessi fáránlega ákæra er niðurstaðan af þriðju rannsókn á sama máli án þess að nokkuð hafi breyst í því, nema kannski túlkun lögreglunnar á því sem skiptir máli að eyða tíma og fjármunum embættisins í að rannsaka.“

„Það sást líka nokkuð vel að málið er pólitískt þegar lögreglan krafðist aðgangs að bankareikningum Solaris frá stofnun samtakanna árið 2017 en söfnunin sem var til rannsóknar stóð yfir í 26 daga snemma árs 2024. Af prinsipp ástæðum neituðum við að afhenda lögreglu þau gögn sem snúa ekki að söfnuninni, en lögreglan gekk svo langt í því að reyna fá gögnin að hún dró okkur fyrir dómstóla og fór fram á afléttingu bankaleyndar frá upphafi starfsemi samtakanna. Dómstólar stóðu þá í lappirnar og höfnuðu þeirri víðtæku kröfu enda gat lögreglan ekki rökstutt hvers vegna hún vildi fá gögnin.“

Segir 13 tilkynningar hafa verið um opinberar fjársafnanir

Sema Erla bendir á að þegar verjandi hennar viðaði að sér gögnum vegna málsins hafi komið í ljós að frá því í apríl 2021 til október 2026 hafa sýslumanninum borist 13 tilkynningar um opinberar fjársafnanir. „Já ég sagði ÞRETTÁN! Þar af hafa aðeins sjö verið tilkynntar fyrirfram en hinar sex eftir að söfnun hófst.“

Veltir Sema Erla fyrir sér hversu margar safnanir á opinberum vettvangi hafi farið fram á þessum fimm árum eða árinu 2026. „Eða bara síðustu mánuðum? Þá hafa aðeins þrír af þessum aðilum skilað inn endurskoðuðu uppgjöri söfnunar til sýslumanns, eins og lögin kveða á um og Solaris er einn af þeim þremur aðilum! Enginn annar sætir rannsókn eða hefur verið ákærður fyrir að tilkynna ekki söfnun eða tilkynna hana of seint. Málið er því augljóslega persónulegt og lyktar af pólitískum ofsóknum.“

„Síðustu daga hefur þetta trúðaleikhús haldið áfram og nú hefur ákæruvaldið komið í veg fyrir að ég geti tekið til varnar með því að hindra að ég geti kallað til mikilvæg vitni í málinu. Héraðsdómur og Landsréttur hafa fallist á þá kröfu ákæruvaldsins og þar með komið í veg fyrir að ég geti nýtt stjórnarskrárvarin réttindi mín og hagað málsvörn minni með þeim hætti sem ég vil. Og svo segja einhver að við séum öll jöfn fyrir lögum? Nei, valdið ver valdið.“

Sema Erla segist ekki vita hvað þessi brjálæðislega aðför valdastofnunarinnar gegn sér endar, en það er ljóst að leikurinn er mjög ójafn og leikreglurnar brostnar. Bíður hún öllum sem áhuga hafa að koma og fylgjast með aðalmeðferðinni að mæta í héraðsdóm:

„Til stóð að aðalmeðferðin stæði yfir lungann úr deginum enda átti að leiða vitni fyrir dóm, meðal annars opinbera embættismenn sem gáfu okkur ráð varðandi framkvæmd söfnunarinnar, en valdið hafnaði því svo aðalmeðferðin styttist verulega. En þinghald verður opið og ókeypis er á sýninguna.

Húsið mun þó ekki rýma öll þau sem hafa gerst sek um að hafa brotið lög um opinberar fjársafnanir, svo fyrstur kemur fyrstur fær.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅