Wenger mun ekki bjóða sig fram gegn Infantino

Arséne Wenger starfar hjá FIFA í dag.

Arséne Wenger starfar hjá FIFA í dag. AFP/Kirill Kudryavtsev

Arsene Wenger hefur ákveðið að fara ekki í mótframboð gegn Gianni Infantino til forseta FIFA en BBC greinir frá þessu.

Fyrr í vikunni höfðu erlendir miðlar greint frá því að Wenger íhugaði möguleikann á að bjóða sig fram gegn Infantino en samkvæmt heimildum BBC hefur hann ákveðið að hætta við.

Hann fjarlægði sig opinberlega frá áformum Infantinos, sem síðar var horfið frá, um að selja hlut í viðskiptastarfsemi FIFA, þar á meðal heimsmeistaramótinu.

Wenger, sem er yfirmaður alþjóðlegrar knattspyrnuþróunar hjá FIFA, hefði notið stuðnings UEFA sem hefur farið fyrir andstöðunni við Infantino.

UEFA er sagt enn vongott um að finna annan umsækjanda áður en fresturinn rennur út á miðvikudag.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅