Heimilið á ekki að vera útstillingargluggi

Erna Geirlaug Árnadóttir innanhússarkitekt segir þarfir heimilisfólks skipta meira máli en fullkomið útlit. Heimilið eigi fyrst og fremst að vera athvarf þar sem fólki líður vel.

Heimilið á að vera sá staður sem mann langar síst að yfirgefa eftir kvöldmat. Sú hugsun er leiðarljós Ernu Geirlaugar Árnadóttur innanhússarkitekts sem segir þarfir fólksins sem þar býr skipta mun meira máli en fullkomið útlit. Sjálf teiknaði hún húsið sitt í Hafnarfirði og þekkir vel að draumaheimilið verður ekki til á einni nóttu. Það tekur bæði tíma og fjármuni. Nýverið lauk Erna við að útbúa fataherbergi þar sem áður var einföld fataslá og er það nú uppáhaldsrými hennar á heimilinu. Svefnherbergið hefur einnig tekið stakkaskiptum og fengið yfirbragð hótelsvítu.

„Mér finnst hönnun og útlit heimilis einfaldlega snúast um að það sé gott að vera heima hjá sér, ekki bara að heimilið sé eins og einhver útstillingargluggi. Það er auðvitað alltaf gaman að gera eitthvert tvist sem gefur heimilinu karakter og gerir það persónulegra en það þarf fyrst og fremst að vera athvarf þar sem manni líður vel og maður getur verið maður sjálfur. Það er einmitt það sem ég hef gert á mínu eigin heimili og hjálpað öðrum að gera á sínum.“

Áhugi Ernu á hönnun kviknaði snemma og náði ekki aðeins til innanhússhönnunar heldur einnig tísku og sköpunar í víðara samhengi. Sem ung stelpa var hún iðin við að breyta herberginu sínu og fylgdist vel með stefnum og straumum í hönnunarheiminum. Áhuginn leiddi hana í nám við Istituto Superiore di Architettura e Design, ISAD, í Mílanó. Þaðan útskrifaðist hún haustið 1999 og hefur síðan starfað við innanhússhönnun, þó með nokkrum hléum í kjölfar hrunsins.

„Það sem heillar mig við hönnun er hvað hún býður upp á marga möguleika til að skapa eitthvað persónulegt. Ég hef líka gaman af tísku og finnst spennandi að sjá hvernig ólíkar hugmyndir geta komið saman og myndað eina heild. Þessi áhugasvið hafa alltaf tengst hjá mér og ég sæki innblástur víða í verkefnum mínum.“

Erna teiknaði sjálf húsið sitt í Hafnarfirði og hefur lokið framkvæmdunum í áföngum frá því fjölskyldan flutti inn árið 2008. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fataherbergið í uppáhaldi

Erna og fjölskylda hennar fluttu inn í húsið sitt 1. nóvember 2008 og hafa síðan lokið framkvæmdunum í áföngum. Sumar hugmyndir fengu því að bíða lengur en aðrar. Þegar hún er spurð hvaða rými sé í mestu uppáhaldi í dag þarf hún þó ekki að hugsa sig lengi um.

„Fataherbergið mitt. Ég teiknaði það strax inn hjá mér en lét einfalda fataslá duga lengi. Nú er ég komin með alveg frábært fataherbergi. Ég tók svefnherbergið líka í gegn og saman er þetta orðið eins og fimm stjörnu hótelsvíta.“ Við endurbæturnar fékk eigin hönnun Ernu að njóta sín, en bæði rúmgaflinn og náttborðið eru sérsmíðuð eftir teikningum hennar. „Ég hannaði rúmgaflinn og allt þar í kring og svo fannst mér svo erfitt að finna náttborð að ég hannaði það bara sjálf og lét smíða. Ef mann vantar eitthvað sem maður finnur ekki er stundum bara best að láta smíða það fyrir sig.“

Nú er nánast allt tilbúið innanhúss og aðeins á eftir að flísaleggja geymsluna.

„Ég nota spegla mjög mikið“

Í stofunni sést vel hve Erna er hrifin af steini og speglum. Marmari er á arninum og umhverfis hann þriggja metra hár spegill. Sófinn er einnig sérsmíðaður eftir teikningum hennar, en sófaborðið hannaði hún og smíðaði sjálf með aðstoð föður síns. Samspil steinsins í borðinu og arninum er vandlega úthugsað.

„Ég nota spegla mjög mikið, mér finnst þeir gera ofboðslega mikið fyrir rýmið, og ég er líka mjög hrifin af steini. Þegar maður stendur fyrir aftan sófaborðið og horfir yfir það fer æðin úr borðinu í rauninni yfir í arininn. Þetta er allt útpælt. Stofan er svolítið rómantísk og ég er með meiri glamúr heima hjá mér. Þetta er bara mitt og minn stíll er ekki endilega það sem ég er að gera hjá öllum.“

Bera þarf virðingu fyrir húsinu

Verkefni Ernu snúast gjarnan um endurbætur á eldri eignum. Til hennar leitar meðal annars fólk sem veltir fyrir sér hvort það eigi að flytja eða endurnýja núverandi heimili. Hún segir oft geta verið betri kost að vera áfram og gera upp, en breytingarnar þurfi að taka mið af húsinu sjálfu.

„Maður verður að bera virðingu fyrir því hvers konar húsi maður er í. Ég er til dæmis með hús frá áttunda áratugnum og get ekki bara farið inn í það og gert allt skjannahvítt og glansandi. Maður verður að fylgja anda hússins, stíga varlega til jarðar og vanda bæði efnisval og útlit innréttinga. Svo þarf auðvitað líka að hlusta á þarfir húseigendanna og hvað þeir sjá fyrir sér.“

Erna mælir með því að fá hönnuð að verkefninu sem fyrst og hefur jafnvel farið með fólki að skoða eignir áður en ákvörðun um kaup er tekin. Hún segir að við nýbyggingar geti líka skipt máli að huga snemma að innra skipulagi, enda geti staðsetning glugga takmarkað möguleika á uppröðun innréttinga. Þegar kemur að eldhúsinu ráða daglegar venjur heimilisfólks miklu um útfærsluna. Þar þurfi að huga að smáatriðunum jafnt sem heildinni.

„Þegar ég byrja á verkefni mæli ég rýmið og sest niður með fólkinu. Við ræðum hvað það vill hafa í eldhúsinu, hvort það vilji höldur eða höldulausar innréttingar og hvaða tækjum þurfi að koma fyrir. Það geta verið kaffivél, hrærivél og loftsteikingarpottur. Út frá því fæ ég mynd af því hvað þarf margar innstungur og hvar þær eiga að vera. Ég teikna þær alltaf inn þegar ég er að gera eldhús, til dæmis í tækjaskápa eða eyjur.“

Tíminn og kostnaðurinn koma á óvart

Spurð að því hvað komi fólki helst á óvart þegar það ræðst í framkvæmdir nefnir Erna tímann sem þær taka. Fólk vanmeti gjarnan bæði framkvæmdatímann sjálfan og biðina eftir innréttingum, tækjum og efni. Hún segir jafnframt mikilvægt að taka alla kostnaðarliði með í reikninginn frá upphafi svo lokaupphæðin komi fólki ekki í opna skjöldu.

„Þótt innréttingin sjálf kosti ákveðna upphæð má ekki gleyma að það kostar líka að setja hana upp. Það getur tekið einn til þrjá daga, eftir stærð hennar. Þegar innréttingin er komin upp er hægt að fá mann frá steinsmiðju til að mæla fyrir borðplötunni en þá tekur aftur við nokkurra vikna bið eftir henni. Ég læt viðskiptavini mína alltaf vita af þessu og ef biðin er löng læt ég setja bráðabirgðaborðplötu svo hægt sé að nota eldhúsið á meðan.“

Erna aðstoðar viðskiptavini sína í því ferli, meðal annars með því að afla góðra tilboða og fara með þeim í verslanir til að skoða valkosti sem henta bæði óskum þeirra og fjárhag. Þegar fjármagnið er takmarkað geti verið skynsamlegt að velja ódýrari innréttingu og leggja meira í fallega steinborðplötu sem geri mikið fyrir heildarútlitið. Hún getur einnig leitað til iðnaðarmanna sem hún þekkir af fyrri verkefnum.

Eigin reynsla af framkvæmdum hefur gert Ernu meðvitaða um þá fjárfestingu sem felst í að gera upp heimili og ábyrgðina sem fylgir því að aðstoða aðra við slíkar ákvarðanir. „Ég veit sjálf hvað þetta kostar mikið og mann langar að fólk geti gert meira. Þetta eru miklar upphæðir og það er vandmeðfarið að gera svona fyrir fólk. Fyrir mér er þetta mjög persónulegt. Það er fyrir mestu að fólk sé ánægt og finni að það sé verið að hjálpa því að skapa sitt heimili. Ég reyni að passa vel upp á viðskiptavinina mína, af því að það myndi ég vilja sjálf ef ég væri að leita mér að svona aðstoð.“

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅