Vatn er rauði þráðurinn
Beili Liu er fædd í Kína en hefur búið og starfað í Bandaríkjunum síðan hún var rúmlega tvítug en hún starfar sem prófessor við University of Texas í Austin og vinnur að eigin list. Umhverfismál eru henni hugleikin og hefur hún gert myndlistarverk og innsetningar í áratug sem fjalla um viðkvæmt samband manns og náttúru. Á sýningunni Vatnsins streymi gengur vatnið líkt og rauður þráður um verk Beili Liu og beinir hún sjónum sínum jafnt að ám og úthöfum, fjarlægum ströndum og þeim efniviði sem berst þar á milli.
Liu kom fyrst til Íslands í kringum áramótin 2023-24 og dvaldi þá í gestavinnustofu Hafnarborgar sem nú hefur verið rekin í fjörutíu ár. Hún er nú mætt aftur til landsins, í þetta sinn með sýningu í Sverrissal.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗