Japanar vilja að ferðamenn hætti þessu
Japanska embættismenn grunar að sumir ferðamenn, sem heimsækja landið, kaupi sér ódýrar japanskar ferðatöskur í landinu og skilji gömlu töskurnar sínar eftir til að losna við að greiða fyrir förgun þeirra.
Margir ferðamenn halda heim á leið með nýjar ferðatöskur og skilja þær gömlu eftir á götum úti, í almenningsgörðum eða við hótel. Þetta þýðir að bæjar- og borgaryfirvöld þurfa að sjá um að safna töskunum saman og farga þeim.
Í Toshima hverfinu í Tókýó, sem er vinsælt verslunarhverfi, stendur nú til að byrja að sekta fólk fyrir að skilja ferðatöskur eftir á almannafæri. Fengu yfirvöld sig fullsödd eftir að 290 töskur fundust á svæðinu á síðasta ári.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗