„Það er enginn rasismi á Spáni“

Luis de la Fuente.

Luis de la Fuente. AFP/Ronaldo Schemidt

Ríkjandi heimsmeistarar í spænska landsliðinu taka á móti Englandi í dag í 6. umferð 3. riðils A-deildar Þjóðadeildarinnar. Thomas Tuchel, þjálfari enska landsliðsins, segist ætla að minna leikmenn sína á verklagsreglur UEFA gegn kynþáttafordómum.

Tuchel segir þetta ekki að ástæðulausu þar sem þetta er í fyrsta sinn sem enska landsliðið heldur til höfuðborgar Spánar síðan þjóðirnar mættust árið 2004 á Bernabeu-leikvanginum þar sem leikurinn féll í skuggann af kynþáttaníði sem beint var að leikmönnum.

Luis de la Fuente, þjálfari spænska landsliðsins, var síðan spurður fyrir leik hvort skilaboð Tuchel bentu til þess að enn væri verk að vinna þegar kemur að kynþáttafordómum á Spáni:

„Það er enginn rasismi á Spáni. Bara svona, kristaltært. Alveg eins og í Englandi er enginn rasismi á Spáni. Við erum ekki rasistar, ekkert okkar,“ sagði de la Fuente.

Staðhæfing de la Fuente er hins vegar ekki alveg í samræmi við staðreyndir þar sem spænska knattspyrnusambandið var sektað í síðasta mánuði eftir að stuðningsmenn hreyttu meinyrðum í garð múslima í leik gegn Egyptalandi.

Einnig má nefna að stjörnuleikmaður Real Madrid, Vinicous Junior, sem er mikill talsmaður gegn kynþáttafordómum, hefur ítrekað þurft að þola kynþáttaníð frá bæði stuðningsmönnum á Spáni og leikmönnum.

Spánverjar sitja í efsta sæti riðilsins með 15 stig á meðan England er rétt á eftir með 12 stig. Sigurvegarinn myndi því tryggja sér efsta sæti riðilsins. 

Liðin mætast á heimavelli Atlético Madrid klukkan 19:45 í kvöld.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅