Icebreakers úr Grunnskóla Hornafjarðar sigruðu í síðustu Stóru LEGO-keppni grunnskólanna
Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 15. nóvember 2026 12:19
Liðið Icebreakers úr Grunnskóla Hornafjarðar sigraði í Stóru LEGO-keppni grunnskólanna. Mynd: Aðsend.
Liðið Icebreakers úr Grunnskóla Hornafjarðar sigraði í Stóru LEGO-keppni grunnskólanna, FIRST® LEGO® League Ísland sem fram fór í Háskólabíói í gær. Þetta var síðasta keppnin undir merkjum FIRST LEGO League hér á landi en í stað hennar kemur ein stærsta alþjóðlega vélmenna- og STEM-keppni heims, World Robot Olympiad (WRO), sem verður hér á landi í fyrsta sinn vorið 2027.
Sigurliðið. Mynd: Aðsend.
Alls var 21 lið frá 17 grunnskólum víðs vegar af landinu skráð til þátttöku í keppnina í gær, samtals nærri 200 þátttakendur. Þema LEGO-keppninnar í ár var BIOGLOW eða lífljómi og tengdist líffræðilegri fjölbreytni og tengslum lífvera í vistkerfum. Liðin höfðu undirbúið sig fyrir keppnina undanfarnar vikur og mánuði undir leiðsögn þjálfara sinna og á þeim tíma rannsakað áskoranir sem tengjast lífríkinu, þróað eigin nýsköpunarhugmyndir og hannað og forritað LEGO-vélmenni til þátttöku í vélmennakappleik.
Liðin voru metin út frá ýmsum þáttum, eins og nýsköpunarverkefninu sem þau unnu, hönnun og þróun vélmennis og frammistöðu í vélmennakappleik auk liðsheildar. Þegar stigagjöf í einstökum þátttum keppninnar hafði verið tekin saman kom í ljós að liðið Icebreakers úr Grunnskóla Hornafjarðar varð hlutskarpast. Í viðurkenningarskyni fékk liðið forláta bikar úr LEGO-kubbum og 300 þúsund krónur í verðlaunafé. Jafnframt býðst liðinu að taka þátt í alþjóðlegum mótum FIRST® LEGO® League en keppnin nær til meira 110 landa um heim allan.
Verðlaun í einstökum flokkum fengu eftirtalin lið
Besta hönnun og forritun vélmennis
- sæti: Flóra úr Brúarásskóla í Jökulsárhlíð á Fljótsdalshéraði
- sæti: Fat Cats úr Holtaskóla í Reykjanesbæ
- sæti: Anomalocaris Gang úr Austurbæjarskóla
Mynd: Aðsend.
Vélmennakappleikur
- sæti: Icecoders úr Grunnskóla Hornafjarðar
- sæti: Fat Cats úr Holtaskóla í Reykjanesbæ
- sæti: Flóra úr Brúarárskóla í Jökulsárhlíð á Fljótsdalshéraði
Mynd: Aðsend.
Besta liðsheildin
- sæti: Icebreakers úr Grunnskóla Hornafjarðar
- sæti: Biobeasts úr Landakotsskóla
- sæti: Stöðvíks-Bandits úr Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla
Mynd: Aðsend.
Besta nýsköpunarverkefnið
- sæti: Icecoders úr Grunnskóla Hornafjarðar
- sæti: Seiðin 7 úr Vopnafjarðarskóla
- sæti: Áttavitar úr Garðaskóla í Garðabæ
Mynd: Aðsend.
Jafningjaverðlaun: Fat Cats úr Holtaskóla í Reykjanesbæ
Háskóli Íslands hefur haldið utan um Stóru LEGO-keppni grunnskólanna í yfir tvo áratugi með stuðningi ýmissa fyrirtækja. Líkt og undanfarin ár var Verkfræðingafélag Íslands helsti bakhjarl keppninnar og á stóran þátt í að gera þessa spennandi keppni að veruleika.
Sem fyrr segir er keppnin í ár er sú síðasta hér á landi undir merkjum FIRST LEGO League en áhugi ungs fólks á vélmennum og nýsköpun fær áfram farveg hér á landi. Vorið 2027 verður Ísland í fyrsta sinn hluti af World Robot Olympiad, WRO (https://wro.hi.is/). Þar opnast ný tækifæri fyrir ungt fólk í grunnskólum, framhaldsskólum og háskólum til að hanna, smíða, forrita og vinna saman að lausnum.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗