PlayStation-skortur á landinu
Óhætt er að segja að mikil eftirvænting ríki eftir tölvuleiknum Grand Theft Auto VI sem kemur út á fimmtudaginn. Leikurinn er þegar orðinn sá mest forpantaði í PlayStation Store og þegar opnað var fyrir forniðurhal hans fór umferð um útlandagátt íslenska fjarskiptafyrirtækisins Nova í sögulegt hámark.
Þá hefur sala á PlayStation 5-leikjatölvum aukist umtalsvert í aðdraganda útgáfu leiksins. Í september jókst salan til að mynda um 22% í Bandaríkjunum og rúmlega 30% í Bretlandi.
Þegar vefsíður íslenskra söluaðila eru skoðaðar sést að PlayStation 5-tölvur eru uppseldar eða nær uppseldar á öllum stöðum.
Gervigreindarkapphlaupið spilar þar inn í
Arinbjörn Hauksson, markaðsstjóri ELKO, segir nokkra þætti spila þar inn í.
„PlayStation 5 er vara sem er orðin sex ára gömul, en það er samt einhvern veginn erfitt að halda henni á lager. Það er mikil eftirspurn eftir henni og eftirspurnin akkúrat núna er einfaldlega umfram framboðið,“ segir hann.
„Það má kannski helst rekja til gervigreindarkapphlaupsins og aukinnar eftirspurnar eftir svokölluðu vinnsluminni í heiminum.“
Sem stendur eru PlayStation 5-tölvurnar uppseldar hjá ELKO en Arinbjörn segir von á nýrri sendingu í næstu viku.
Hefðu sennilega selt meira
Hafið þið tekið eftir aukinni eftirspurn eftir PlayStation-tölvunni í aðdraganda nýja Grand Theft Auto-leiksins?
„Þetta er mjög svipuð sala og á sama tíma í fyrra. En það er rosalega erfitt að meta það, því eins og ég segi er hún uppseld,“ segir Arinbjörn.
„Við hefðum örugglega selt meira af henni en á sama tíma í fyrra ef hún væri einfaldlega til.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

