„Helst án þess að vera drepleiðinlegt og rándýrt“
Jóni Gnarr þingmanni finnst mikilvægt að bjóða fólki upp á fjölbreyttar leiðir til að læra íslensku. „Helst án þess að vera drepleiðinlegt og rándýrt,“ segir hann í samtali við mbl.is.
Honum þykir það jafnframt skjóta skökku við að ákveðnir hópar nemenda frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) fái ekki undanþágu frá nýjum skólagjöldum Háskóla Íslands (HÍ).
„Mér finnst mjög skrýtið að við skulum ekki vera að veita ákveðnum nemendum undanþágu,“ segir Jón og kveðst hafa átt í samskiptum við háskólakennara undanfarið um skólagjöldin og áhrif þeirra.
Námsbrautir gætu lagst af
Mikið hefur verið rætt og ritað um skólagjöldin og hefur forseti hugvísindasviðs HÍ meðal annars sagt skólann verða af góðum nemendum vegna gjaldanna og að þau geti jafnvel orðið til þess að sumar námsleiðir leggist af.
Þá hefur námsbrautarformaður Íslensku sem annars máls við HÍ sagt gjöldin ganga gegn málstefnu ríkisins. Um 65-70% nýnema í námsleiðinni koma frá löndum utan EES. Frá og með næsta skólaári munu þeir þurfa að greiða allt að 1,45 milljónir króna í skólagjöld á ári.
Hingað til hefur námið verið án skólagjalda.
„Meirihlutinn af nemendum í menningartengdu námi kemur frá löndum utan EES. Það er gríðarlegt verðmæti fyrir okkur sem samfélag að fá öfluga fræðimenn hingað til að sérhæfa sig í íslensku og íslenskum menningarfræðum,“ segir Jón.
„Við mættum standa okkur miklu betur í að bjóða upp á aðgengilegri leiðir til þess að læra íslensku.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗