Jesus með ísköld svör um Ronaldo
Portúgal steinlá fyrir Danmörku, 4:1, í 5. umferð 4. riðils í A-deild Þjóðadeildarinnar í gær í Portúgal í gærkvöldi. Þetta var fyrsti leikur Portúgals eftir að Cristiano Ronaldo lagði landsliðskóna á hilluna.
Bæði leikmenn og stuðningsmenn Portúgals heiðruðu Ronaldo fyrir leik og fannst leikmönnum skrítið að spila fyrir landsliðið án hans þar sem hann lék með því í rúm 23 ár:
„Þetta er sorgleg stund, Cristiano var 23 ár með landsliðinu. Ég hef verið hér í 12 ár, svo ég hef aldrei þekkt landsliðið án hans. Þessi dagur hlaut að koma fyrr eða síðar. En þetta er sorglegt fyrir mig því það var mér stolt og heiður að hafa deilt búningsklefa með honum," sagði Bernando Silva sem skoraði eina mark Portúgals í gær.
Leikmenn Portúgals heiðruðu Ronaldo fyrir leik með því að klæðast allir treyju númer 7. AFP/Miguel Riopa
Þjálfari liðsins, Jorge Jesus, sem átti ábyggilega stærstan þátt í ákvörðun Ronaldo að hætta með landsliðinu, sat einnig fyrir svörum eftir leik. Þá var hann spurður hvort liðið hefði saknað Ronaldo í leiknum en hann svaraði á fremur kaldan máta:
„Sakna hvers? Hann er ekki lengur hér. Hans er saknað sem félaga, en hann er ekki lengur að spila, hann er ekki lengur hér og hann hefur þegar ákveðið framtíð sína.“
Eftir mikið ósætti milli þeirra yfirgaf Ronaldo landsliðshópinn í miðju landsleikjahléi og nokkrum vikum seinna tilkynnti hann að hann væri hættur eftir 23 ár.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
