Breki Karlsson: Innkaupastjórar olíufélaganna rosalega óheppnir – kaupa alltaf á hæsta verði

Það er erfitt að verjast þeirri tilhugsun að innkaupastjórar olíufélaganna íslensku séu með eindæmum óheppið fólk. Einatt kaupa þeir miklar birgðir þegar verð er í hæstu hæðum og þegar verð lækkar eiga þeir svo miklar birgðir að þeir geta ómögulega keypt þá. Fyrir vikið skila hækkanir sér rakleiðis út í verð á dælu en lækkanir ekki. Breki Karlsson, formaður Neytenda samtakanna, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hægt er að hlusta að brot úr þættinum hér:

Aftur að eldsneytinu aðeins. Nú er eldsneytið að stórum hluta, ef ekki bara stærstum hluta, það er komið inn í sömu keðjurnar og eru með matvöruna.

„Já, já, það er rétt og ekki nóg með það heldur er það bara einn birgir. Það er bara eitt fyrirtæki sem flytur inn olíuna og bensínið þannig að það ætti nú að vera hæg heimatökin að kanna hver álagningin er. Það er þannig að jú, þetta er allt orðið eitt, eins og ég sagði, það er spurning hvort þessi fyrirtæki séu jafnvel bara orðin of stór og umsvifamikil til þess að geta viðhaldið, það er þessi brún sem þarf að vera á. Einingarnar þurfa að vera hagkvæmar en það þarf líka að vera samkeppni, það þarf líka að vera aðhald.“

Það þarf að vera, og ég held nefnilega á svona litlum markaði eins og Ísland óneitanlega er að það auðvitað fylgir ákveðið stærðarhagræði en það kallar þá á það að eftirlitið sé markvisst.

„Algjörlega, og þess vegna þarf að, eins og ég hef margoft sagt, það þarf að styrkja eftirlitið.“

Já, nú hefur maður tekið eftir því oft að þegar heimsmarkaðsverð á olíu og eldsneyti hækkar að það kemur bara beint út í bara verðið á dælu hér á Íslandi. En einhvern veginn þá eru alltaf til svo miklar birgðir ef verð lækkar verulega. Það eru til svo miklar birgðir að við fáum ekki að sjá það fyrr en eftir dúk og diska ef við fáum þá að sjá það.

„Það er rétt, þetta er svona tilfinningin hjá manni stundum.“

„Myndi maður ekki reka svona innkaupastjóra ef hann kaupir alltaf þegar verðið er í toppi?

„Rosalega óheppinn. Já, ég veit ekki hvað ég get sagt. Þetta er alveg tilfinningin sem við finnum líka hjá okkar umbjóðendum, fólki líður þannig eins og að þetta séu vondir, eða lélegir, innkaupastjórar.“

En svo er annað, þetta er náttúrlega eldsneyti og matvara. Þetta eru stórir útgjaldaliðir hjá neytendum. Nú, það má segja, það má segja að hinir stærstu útgjaldaliðirnir, það er nú kannski svona þegar kemur að vöxtum og tryggingum og svoleiðis, það tengist fjármálageiranum. Þið hafið verið að skoða tryggingamálin?

„Við skiluðum af okkur skýrslu núna í upphafi sumars þar sem við vorum með sjö tillögur um úrbætur í, í tryggingamálum og við teljum að sé farið eftir þeim þá gætum við séð tugþúsunda króna lækkun á iðgjaldi fólks á hverju einasta ári. Og kerfið eins og það er núna, það er ótrúlega dýrt og ótrúlega flókið. Þú getur þurft að tilkynna tjón á marga staði.

Ef þú slasast eða eitthvað svoleiðis getur þú þurft að leita til lífeyrissjóðsins þíns, til tryggingafélagsins þíns, til Tryggingastofnunar og svo framvegis. Síðan tekur við bara mjög flókið ferli sem ég hef lýst því að þetta er eins og þú sért að labba frá Hlemmi niður á Lækjartorg og þurfir alltaf að kalla til her lögfræðinga til þess að leiða þig alla leiðina niður í staðinn fyrir að það séu bara góðar leiðbeiningar eða einföld leið hérna niður á Lækjartorg. Og þetta er bara mjög dýrt kerfi og mjög flókið og við leggjum til að í stað þess að það sé fámennur hópur manna sem hefur mikla fjárhagslega hagsmuni af gerð á örorkumati. Það verði þá bara ein matsstofnun, svipað eins og er á Norðurlöndum. Við leggjum til að í stað þess að vera með bætur fyrir varanlega örorku, örorkubætur, eigi að bæta upp framtíðartekjumissi og það er bara metið í prósentustigum.

Við teljum að eins og staðan er núna, þá færðu bara eina summu, bara nokkrar milljónir kannski í stað þess eins og á Norðurlöndum, þá tíðkast það sums staðar að þetta þú fáir bara mánaðarlegar bætur.“

Já, þú bara færð þetta eins og þú hefðir fengið launin sem þú verður af?

„Þegar að fólk verður fyrir svona hvalreka, þá færðu einhverjar nokkrar milljónir greiddar út í einu, svona lump sum, í einni summu. Þá er það oft þannig að peningarnir klárast fljótt? Það eru ekki allir sem átta sig á að þetta eru peningarnir fyrir framtíðina. Auðvitað er stundum þarft að flytja, ef þú verður fyrir mikilli varanlegri örorku, þá þarftu að skipta um húsnæði og eða verða þér út um tól eða tæki eða eitthvað slíkt og auðvitað þarf að sjá fyrir því. En það sem á að koma í staðinn fyrir framtíðartekjur þínar á náttúrlega að greiðast út mánaðarlega og það kemur líka í veg fyrir alls kyns freistnivanda.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅