Túnfisksalat að hætti Hollywood-fola
Hinn eini sanni „Alright, Alright, Alright“, bandaríski verðlaunaleikarinn Matthew McConaughey, er ekki aðeins liðtækur fyrir framan myndavélina heldur líka í eldhúsinu. Leikarinn, sem margir þekkja úr myndum á borð við How to Lose a Guy in 10 Days, Dallas Buyers Club, The Wedding Planner og Magic Mike, segist gera eitt besta túnfisksalat sem sögur fara af.
Hann deildi uppskriftinni í hlaðvarpinu 2 Bears, 1 Cave í umsjón grínistanna Bert Kreischer og Tom Segura í nóvember 2024. Síðan þá hafa fjölmargir prófað salatið og deilt myndskeiðum af sér að útbúa það og smakka á samfélagsmiðlum. Þótt tvö ár séu liðin vekur uppskriftin enn athygli netverja og poppar reglulega upp.
Uppskriftin er einföld, en hráefnalistinn er þó lengri en maður er vanur þegar kemur að túnfisksalati.
Túnfisksalat Hollywood-stjörnu
Matthew McConaughey-brauðsalatið- 300 g túnfiskur, helst í ólífuolíu, vökvinn sigtaður frá
- ½ bolli majónes (má bæta við eftir smekk)
- 2 tsk. hvítvínsedik
- 1 msk. sítrónusafi
- 2 tsk. wasabi-mauk (að sögn McConaughey gefur það salatinu þetta auka „kikk“)
- 2 tsk. ítölsk salatdressing
- 3 msk. fínsaxaður rauðlaukur
- 3 msk. fínsaxaðar súrar gúrkur
- ⅓ bolli grófmuldar sterkar maísflögur, helst með jalapeño-bragði
- ¼ bolli smátt saxað epli
- ½ bolli maísbaunir, helst af ferskum maísstöngli, en úr dós virka líka
- ½ bolli frosnar grænar baunir, afþýddar
- Skvetta af agave-sírópi eða hunangi
Aðferð
- Hrærðu saman majónesi, hvítvínsediki, sítrónusafa, wasabi og ítalskri dressingu í skál.
- Bættu rauðlauk, gúrkum, jalapeño-flögum, eplum, maís, grænum baunum og sírópi eða hunangi saman við og hrærðu vel.
- Settu túnfiskinn út í blönduna og blandaðu hann varlega saman með gaffli eða sleif.
- Hægt er að bera salatið fram strax, en McConaughey mælir með að láta það standa í ísskáp yfir nótt svo bragðið nái að blandast vel. Settu það á brauð eða kex, vefðu því inn í nori-blöð eða vefjur, eða borðaðu það einfaldlega með skeið.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗