Bætti metið þrisvar á þremur vikum
Íþróttir | mbl | 15.11.2026 | 11:20
Denas Kazulis úr Íþróttabandalagi Reykjanesbæjar bætti Íslandsmet unglinga í 100 metra skriðsundi karla enn á ný í úrslitum ÍM25 í gærkvöldi.
Hann synti á 49,20 og bætti metið sem hann setti í undanrásum fyrr um daginn um sex hundraðshluta úr sekúndu.
Denas hefur nú bætt metið þrisvar á þremur vikum og er þetta er þriðja unglingametið hans á ÍM25. Á föstudaginn bætti hann einnig metið í 50 m skriðsundi er hann kom í mark eftir 22,43 sekúndur.
Lokadagur ÍM25 er í dag og hefst á undanrásum kl. 9:00 og eru úrslitin kl. 16:30.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗