FKA einn af íslenskum bakhjörlum Heimsþings kvenleiðtoga
Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 15. nóvember 2026 11:17
Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri FKA, Hanna Birna Kristjánsdóttir Reykjavík Global Forum og Sylvía Hall framkvæmdastjóri Reykjavík Global Forum.
FKA einn af íslenskum bakhjörlum Heimsþings kvenleiðtoga, Reykjavík Global Forum. Heimsþing kvenleiðtoga, Reykjavík Global Forum – Women Leaders 2026, er haldið í Hörpu dagana 15.–17. nóvember. Heimsþingið er haldið í níunda sinn og þema þingsins í ár er „Power, Together for Community“.
„Ísland hefur verið í fararbroddi í jafnréttismálum og hefur Reykjavík orðið mikilvægur vettvangur fyrir alþjóðlega umræðu um forystu, lýðræði og jafnrétti. Hanna Birna Kristjánsdóttir, einn af stofnendum Reykjavík Global Forum og stjórnarformaður þess, hefur gegnt lykilhlutverki í að tengja saman kvenleiðtoga víðs vegar að úr heiminum þannig að eftir er tekið,“ segir Ingibjörg Salóme Sigurðardóttir formaður Félags kvenna í atvinnulífinu, FKA. „Við gætum ekki verið stoltari af því að taka þátt í Heimsþinginu.“
Ingibjörg Salóme Sigurðardóttir formaður FKA.
Reykjavík Global Forum var stofnað með það að markmið að styrkja stöðu og samtal kvenna í valda- og áhrifastöðum. Þingið er haldið í samstarfi við ríkisstjórn Íslands og Alþingi, er eingöngu opið boðsgestum og hingað koma leiðtogar frá öllum heiminum. FKA er nú orðið einn af íslenskum bakhjörlum Heimsþingsins og gefst félagskonum FKA því sérstakt tækifæri til að taka þátt með ýmsum hætti.
„Ég fékk það hlutverk að aðstoða og verja tíma með tveimur leiðtogum fyrsta árið og eitt af verkefnunum var að fara með konur á Alþingi þar sem fundað var með Vigdísi Finnbogadóttur. Þá náði ég að spjalla við ólíkar áhrifakonur frá öllum heimshornum þessa daga mér til yndisauka og þemað ávallt hvað við erum komin langt hér á landi í jafnréttismálum enda skást í öllum heiminum,“ segir Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri FKA. „Ég held að það sé meðal annars slabbið sem hefur mótað okkur sem leiðtoga og því finnst mér svo gaman þegar það er verið að bjóða fólki heim á þessum árstíma. Ég veit ekkert hvort Hanna Birna sé sammála mér með slabbið en einstakur kraftur einkennir hana og hún getur heldur betur verið stolt af sér,“ bætir Andrea við. „Stjórnarkonur og stjórnarformenn innan FKA verða hluti af teymi þjónandi leiðtoga sem styðja við framkvæmdaraðila þingsins í ár. Sjálfboðaliðar sinna afmörkuðum verkefnum og þátttakan getur skapað verðmæt alþjóðleg tengsl og veitt einstaka innsýn í alþjóðlega leiðtogahugsun, stjórnarhætti og samstarf. Sjálfboðaliðar leggja þinginu lið meðan það stendur yfir og fá jafnframt tækifæri til að njóta hluta af dagskrá þess,“ segir Andrea.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗