Áttu smá rjóma? – Svona geturðu notað hann

Pressan

Sunnudaginn 15. nóvember 2026 11:30

Það gerir kartöflumúsina ekki verri að setja smá rjóma í hana.

Þú þarft kannski að nota tvo desílítra í sósuna og nú stendur rjómafernan bara í ísskápnum og horfir á þig og þú spyrð sjálfa(n) þig: „Hvað á ég að gera við restina?“

Fyrir það fyrsta þá er auðvelt að gleyma að það er til rjómi í ísskápnum og þegar maður man það loksins, þá er hann ónýtur.

Það er auðvitað hægt að frysta hann og nota síðar í sósur, súpur og fleira.

En svo er auðvitað hægt að nota hann áður en hann rennur út.

Hér eru nokkur góð ráð um hvernig er hægt að nota rjómann:

Gerðu hrærðu eggin aðeins rjómakenndari – Ef þú átt bara smávegis rjóma eftir, þá getur morgunmaturinn verið lausnin. Smávegis rjómi í hrærðu eggin gerir þau þéttari og rjómakenndari. Það dugir að nota tvær þrjár matskeiðar í einn skammt af eggjum.

Í kartöflumúsina – Kartöflumús er nánast sköpuð til að taka við rjómaafgangi. Hitaðu rjómann varlega ásamt smávegis smjöri. Hrærðu honum síðan saman við músina. Hún verður þéttari fyrir vikið. Ef þú átt ekki nóg af rjóma, þá er hægt að nota mjólk með.

Gerðu pastasósu í skyndingu – Rjómi, pasta og afgangur úr ísskápnum geta orðið að ljúffengum kvöldmat. Hrærðu til dæmis hvítlauk, lauk, sveppum og beikoni saman á pönnu og settu síðan rjóma út á. Láttu þetta malla aðeins og svo er bara að setja rifinn ost út á til að styrkja bragðið af sósunni.

Settu hann í súpuna – Tómatsúpa, kartöflusúpa, asparssúpa eða nánast hvaða súpa sem er þolir vel að fá smá rjóma.

Í sósuna – Sósur bjóða næstum upp á að taka við rjóma. Piparsósa, sveppasósa og flestar aðrar sósur taka fagnandi við rjóma.

Í dessertinn – Svo er rjómi auðvitað algjör snilldar viðbót við eftirmatinn. Það er hægt að nota hann þeyttan með ávöxtum, eplaköku eða út í heitt kakó. Svo er hægt að nota hann út á ber.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅