Laug um andlát eiginkonu sinnar á Barbados
Fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður hjá lögreglunni í Lundúnum laug um andlát eiginkonu sinnar á hótelherbergi á Barbados, samkvæmt upplýsingum fréttaskýringaþáttarins Panorama á BBC.
Hann hafði áður sætt rannsókn vegna gruns um að hafa notfært sér brotaþola í viðkvæmri stöðu í kynferðislegum tilgangi, en honum bar að vernda þá í starfi sínu.
Warren Arter kynntist eiginkonu sinni, Rebekah, eftir að hún tilkynnti lögreglunni í Lundúnum um heimilisofbeldi. Hann beitti hana síðan ofbeldi í meira en áratug. Hún lést fyrir tveimur árum, 47 ára að aldri, en andlátið hefur aldrei verið rannsakað með fullnægjandi hætti.
Sendu ekki lögreglumann til Barbados
Samkvæmt upplýsingum Panorama brugðust yfirvöld á Barbados við varðveislu sönnunargagna og öflun vitnisburðar frá hótelstarfsfólki um grunsamlega hegðun Arters fyrir og eftir andlát hennar. Þrátt fyrir beiðni fjölskyldu hennar um aðstoð sendi lögreglan í Lundúnum ekki rannsóknarlögreglumenn til Barbados.
Fjölskyldan tjáir sig nú opinberlega í fyrsta sinn og segir í samtali við Panorama að lögreglan í Lundúnum hafi brugðist henni.
Dánarorsökin er enn ókunn. Við opinbera rannsókn á andlátinu í Bretlandi var niðurstaðan sú að ekki væri unnt að skera úr um með hvaða hætti dauða hennar hefði borið að.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗