SpaceX grípur geimfar í fyrsta sinn

Geimfyrirtækinu SpaceX tókst í gær í fyrsta sinn að grípa Starship-geimfar með vélörmum þegar það sneri aftur úr geimferð. AFP

Geimfyrirtækinu SpaceX tókst í gær í fyrsta sinn að grípa Starship-geimfar með vélörmum þegar það sneri aftur úr geimferð. Árangurinn markar mikilvægt skref í átt að því að hægt verði að endurnýta eldflaugakerfið að fullu og lækka þannig kostnað við geimferðir.

Geimfarið kom niður úr skýjunum eftir að hafa staðist gríðarlegan hita við endurkomuna inn í lofthjúp jarðar. Það seig síðan niður að Starbase-geimstöð SpaceX í suðurhluta Texas og rann mjúklega milli tveggja vélarma við skotpall númer tvö.

Geimiðnaðurinn hefur um áratuga skeið stefnt að því að þróa eldflaugakerfi sem hægt er að endurnýta að fullu. Slík kerfi gætu lækkað kostnað við geimferðir verulega og gert tíðari geimskot möguleg.

„Þetta var æðsta takmark geimferðanna: Að steypast gegnum eld og vera gripinn á lofti af stálörmum. Við gripum Starship og nú breytist allt,“ sagði Dan Huot, talsmaður SpaceX.

Mannfjöldi sem hafði safnast saman utan við Starbase braust út í fagnaðarlæti þegar geimfarið birtist. Í beinni útsendingu fyrirtækisins hljómaði lagið „Baby Come Back“ frá árinu 1977 meðan farið nálgaðist vélarmana.

„Ég trúi því að þetta sé upphaf geimaldar,“ sagði Dane Walter, 38 ára áhorfandi frá Corpus Christi í Texas. Hann kvaðst telja augnablikið sambærilegt við flug Wright-bræðra við Kitty Hawk.

Fór 14 hringi um jörðina

Þetta var fimmtánda tilraunaflug Starship, stærsta og öflugasta eldflaugakerfis heims. Kerfið samanstendur af Super Heavy-burðarflauginni og Starship-geimfarinu, sem það dregur nafn sitt af.

Á 22 klukkustunda ferðalagi sínu fór geimfarið 14 hringi um jörðina og kom 26 gervihnöttum á braut fyrir Starlink-netkerfi SpaceX.

Fyrirtækinu hafði áður þrisvar tekist að grípa burðarflaugar eftir flug. Mun flóknara var þó að grípa sjálft geimfarið, enda kom það úr mun meiri hæð og á meiri hraða en burðarflaugarnar.

„Ég faðmaði geimfar númer 42 þegar það sneri aftur,“ skrifaði Elon Musk, stofnandi SpaceX, á samfélagsmiðilinn X. Hann birti myndskeið frá nokkrum sjónarhornum og sagði farið líta „frábærlega út“.

Clayton Swope, sérfræðingur í geimferðamálum hjá bandarísku hugveitunni CSIS, sagði leiðangurinn „gríðarlegt tæknilegt afrek“. Árangurinn sýndi að hugmyndin um Starship sem geimfar sem hægt væri að endurnýta að fullu gæti gengið upp.

„Sjáum hversu fljótt þeim tekst að endurtaka þetta,“ sagði hann.

Kathleen Curlee, sérfræðingur við rannsóknarsetur Georgetown-háskóla um öryggi og nýja tækni, fagnaði einnig árangrinum en sagði enn verk að vinna.

„SpaceX þarf að ná árangri ítrekað til að sýna fram á að tæknin sé tilbúin til að flytja viðkvæman farm og sinna vandasömum verkefnum,“ sagði hún.

Geimfarið kom niður úr skýjunum eftir að hafa staðist gríðarlegan hita við endurkomuna inn í lofthjúp jarðar. AFP

„Nánast töfrar“

Sumum útgáfum Starship er ætlað að flytja fjarskiptagervihnetti og gagnaver á braut um jörðu. Aðrar eiga að flytja fólk til tunglsins og Mars.

Bandaríska geimvísindastofnunin NASA hyggst nota Starship sem tungllendingarfar í Artemis-áætlun sinni. Jared Isaacman, forstjóri stofnunarinnar, sagði í gær að það væru „nánast töfrar“ að tekist hefði að grípa farið.

„Þeim fjölgar með hverjum deginum sem trúa á þetta … einu skrefi nær tunglinu,“ skrifaði hann á X.

Musk sér fyrir sér að Starship verði burðarás í geimflutningum þar sem hægt verði að nota sömu eldflaugar aftur með stuttu millibili. Hann hefur spáð því að eftir þrjú til fjögur ár verði Starship skotið á loft oftar en einu sinni á klukkustund.

Svo tíð geimskot gætu gert kleift að koma upp umfangsmiklum gagnaverum á braut um jörðu eða flytja búnað til uppbyggingar mannabyggðar á tunglinu eða Mars.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅