Giannis ótrúlegur í stórsigri á Detroit
Gríska undrið Giannis Antentokounmpo fór á kostum í sigri Miami Heat í nótt gegn Detroit Pistons, 137:117, í NBA-deildinni í Miami í nótt.
Miami er þar með búið að vinna fjóra leiki í röð en liðið byrjaði tímabilið afskaplega illa og tapaði fyrstu fjórum leikjunum og situr liðið nú í fjórða sæti austurhluta deildarinnar með sjö sigra og sex töp. Detroit er í þriðja sætinu með 8 sigra og fjögur töp.
Giannis lét heldur betur finna fyrir sér þar sem hann skoraði 34 stig, tók 14 fráköst og gaf átta stoðsendingar ásamt því að vera með þrjú varin skot. Cade Cunningham var stigahæstur í liði Pistons-manna en hann skoraði 33 stig.
A SUPERSTAR DUEL WENT DOWN IN SOUTH BEACH! GIANNIS: 34p (15 in 2H), 14r, 8a, 3b CADE: 33p (17 in 2H), 5r, 8a Miami extends its win streak to 4 games 🔥 https://t.co/QJk8d8TTS7
— NBA (@NBA) November 15, 2026
Giannis gekk í raðir Miami í sumar frá Milwaukee Bucks þar sem hann hafði verið síðan árið 2013 og hefur byrjað tímabilið frábærlega. Að meðaltali skorar hann 29 stig í leik, tekur 13 fráköst og gefur fimm stoðsendingar.
Úrslit næturinnar í NBA-deildinni
Memphis Grizzlies – Brooklyn Nets 129:110
Minnesota Timberwolves – Chicago Bulls 117:106
Cleveland Cavaliers – Dallas Mavericks 127:117
New Orleans Pelicans – Denver Nuggets 108:116
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗