Verk eldri meistara í endursölu
Kuldaboli beit fast í kinnar daginn sem blaðamaður lagði leið sína niður í Tryggvagötu til fundar við Börk Arnarson, framkvæmdastjóra og eiganda listagallerísins i8. Börkur hefur verið viðloðandi i8 frá opnun þess árið 1995 en það var móðir hans, Edda Jónsdóttir myndlistarmaður, sem stofnaði galleríið.
Börkur tók svo alfarið við árið 2006. i8 hefur frá upphafi verið með bæði íslenska og erlenda listamenn á sínum snærum sem þau vinna náið með og sýna reglulega. Í dag starfa þau með 24 listamönnum og hefur um helmingur af þeim unnið með galleríinu í meir en tvo áratugi. i8 er bæði með sali í Tryggvagötu og í Marshallhúsinu, en þar fær hver listamaður að sýna í heilt ár í senn, í síbreytilegri sýningu.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗