Flugferðum enn aflýst og Trump þögull

Trump sem yfirleitt liggur ekki á skoðunum sýnum hefur ekki tjáð sig um flugbannið. AFP/KEVIN DIETSCH

Gert er ráð fyrir að flugsamgöngur í Bandaríkjunum komist í eðlilegt horf í dag eftir að flugbann á föstudagskvöld skildi hundruð þúsunda farþega eftir í óvissu og raskaði ferðalögum um allan heim.

Ríkisstjórn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta hefur kennt misheppnuðum skiptum á gömlum koparsamskiptalínum um bilunina sem olli flugbanninu.

Bryan Bedford, yfirmaður Flugmálastjórnar Bandaríkjanna (FAA), sagði að 12.000 flugferðum hefði verið aflýst á föstudag, en vefsíðan FlightAware, sem fylgist með flugumferð, sýndi að meira en 6.600 flugferðum hefði verið aflýst í gær.

Í morgun hafði FlightAware skráð meira en 1.200 aflýstar flugferðir það sem af er degi.

Á blaðamannafundi í Washington spáði Bedford því að flugáætlanir yrðu komnar að fullu í gang „fyrir lok vinnudags á sunnudag“.

Það hefur vakið athygli að Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur verið óvenju þögull um bilunina og flugbannið en í morgun hafði hann enn ekki tjáð sig um það opinberlega.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅