Orðið á götunni: Vill borða kökuna en eiga hana samt áfram – yfirgripsmikið fjármálaólæsi Sjálfstæðismanna

Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri, lýsti því fjálglega yfir í vikunni að borgin myndi beita skipulagsvaldi sínu, ef þurfa þætti, til að koma í veg fyrir veggjöld á stofnbrautum í höfuðborginni. Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, stökk á vagninn hjá Hildi strax degi síðar og sagði veggjöld ekki koma til greina. Hægt væri að selja Landsbankann og nota andvirðið til að fjármagna framkvæmdir samgöngusáttmálans en veggjöld kæmu ekki til greina. Orri Björnsson, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar, tók í sama streng, og sagði ríkið verða að skaffa 90% af því sem framkvæmdir vegna samgöngusáttmálans kosta.

Orðið á götunni er að þessir oddvitar Sjálfstæðismanna í þremur stærstu sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins ættu kannski að rifja upp út að hvað samgöngusáttmálinn gengur. Hann gengur einmitt út á að ríkið eigi að standa undir bróðurpartinum af kostnaðinum. En það kemur líka skýrt fram í honum hvernig á að fjármagna hlut ríkisins. Það er m.a. með veggjöldum. Og þar er ekki verið að tala um að setja veggjöld milli Hellu og Hvolsvallar eða Akraness og Borgarness heldur á höfuðborgarsvæðinu.

Þetta ætti Ásdís Kristjánsdóttir að vita manna best, enda skrifaði hún sjálf undir nýjustu uppfærslu á samgöngusáttmálanum, þar sem þetta kemur skýrt fram. Orri Björnsson ætti svo sem að vita þetta líka, enda var hann í meirihlutanum sem samþykkti sáttmálann. Ef þetta vefst eitthvað fyrir Hildi gæti hún sem hægast beðið samverkamann sinn í meirihlutanum í Reykjavík, Einar Þorsteinsson, að upplýsa hana um málið, en hann skrifaði undir ásamt Ásdísi þegar hann var borgarstjóri í Reykjavík, enda eru ekki liðin nema tvö ár síðan sáttmálinn var endurnýjaður.

Orðið á götunni er að yfirlýsingar Hildar og Ásdísar séu bersýnilega ekki í þágu íbúa höfuðborgarsvæðisins. Þær eru birtingarmynd valdabaráttu í Sjálfstæðisflokknum en báðar binda þær vonir við að verða arftakar Guðrúnar Hafsteinsdóttur á formannsstóli, en staða Guðrúnar er mjög tæp og veikist stöðugt.

Tillaga Ásdísar um að selja Landsbankann til að fjármagna samgöngusáttmálann getur vart talist skynsamleg. Engin stemning er fyrir því í samfélaginu, utan höfuðstöðva Sjálfstæðisflokksins og Viðskiptaráðs, að selja Landsbankann. Þessi ríkisstjórn ætlar ekki að selja Landsbankann og mun ekki taka við skipunum frá Ásdísi Kristjánsdóttur um það eða annað.

Þá skilar Landsbankinn ríkissjóði 35 milljörðum á ári í arðgreiðslur. Þær tekjur myndu hverfa ef bankinn er seldur. Ásdís segir að selja ætti bankann til að fjármagna samgöngusáttmálann en í sömu setningu fullyrðir hún að sala bankans geti lækkað skuldir ríkisins þannig að vaxtagreiðslur þess minnki um 25 milljarða á ári. Þetta stemmir ekki alveg. Annaðhvort á andvirðið að fara í lækkun skulda eða fjármögnun samgöngusáttmálann. Ekki er hægt að gera hvort tveggja. Orðið á götunni er að Ásdís leggi í raun til að bæði sé hægt að borða kökuna og eiga hana. Svo virðist sem fjármálalæsi sé mjög ábóta vant meðal Sjálfstæðismanna, jafnvel þeirra sem treyst hefur verið fyrir mikilli fjárhagslegri ábyrgð.

Orðið á götunni er að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu standi frammi fyrir frekar einföldu vali. Annaðhvort verður haldið áfram með uppbyggingu samgangna á svæðinu samkvæmt samgöngusáttmálanum, þar með talið fjármögnun hans m.a. með veggjöldum af stofnbrautum á svæðinu, eða ríkið beini sjónum sínum annað þegar kemur að uppbyggingu samgöngumannvirkja. Víst er að næg eru verkefnin og víða um land. Innviðaskuldin eftir síðustu ríkisstjórn er ekki bara í Reykjavík.

Orðið á götunni er að þessir helstu oddvitar Sjálfstæðisflokksins á höfuðborgarsvæðinu virðist ekki átta sig á því að í flestum helstu borgun veraldar eru veggjöld af einum eða öðrum toga notuð til að draga úr umferðarþunga, burtséð frá uppbyggingu almenningssamgangna og fjármögnun þeirra. Gjaldtaka er markaðsleiðin til að draga úr álagi. Það er athyglisvert að leiðtogar Sjálfstæðisflokksins, sem eitt sinn var talinn hlynntur markaðslausnum, skuli alfarið leggjast gegn markaðslausnum sem þeir voru sjálfir meira að segja búnir að samþykkja.

Orðið á götunni er að borgarstjórinn í Reykjavík, bæjarstjórinn í Kópavogi og formaður bæjarráðs í Hafnarfirði leiki hættulegan leik sem hæglega getur endað illa fyrir þá. Hið dapurlega er að þetta fólk er að fórna hagsmunum íbúa í þágu eigin valdabrölts í Sjálfstæðisflokknum.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅