„Fólk hélt að ég væri að grínast“

Inga Lára og Þórir Sigurjónsson eiga von á dóttur í janúar og hafa hlustað saman á Tvíhöfða frá því þau voru að kynnast. Það vakti því mikla lukku þegar hún fékk þá Jón Gnarr og Sigurjón Kjartansson til að árita sónarmynd í áskrifendafögnuði á Mossley. Samsett/Ljósmynd/Studioolender

Inga Lára og Þórir Sigurjónsson eiga von á sínu fyrsta barni í janúar. Þau höfðu ekki tilkynnt um óléttuna á samfélagsmiðlum þegar árituð sónarmynd rataði í frétt á Smartlandi og kom mörgum í opna skjöldu.

Þegar Inga Lára mætti í áskrifendafögnuð Tvíhöfða á veitingastaðnum Mossley á Kársnesi hafði hún meðferðis nokkuð sem kom Jóni Gnarr og Sigurjóni Kjartanssyni rækilega á óvart.

Í stað þess að láta nægja að fá eiginhandaráritanir á bol dró hún fram sónarmynd af væntanlegri dóttur sinni.

Inga Lára lét árita bæði sónarmynd og bol þegar hún hitti Tvíhöfða. Ljósmynd/Aðsend

Hugmyndin kviknaði eftir að Þórir bað hana að fara fyrir sína hönd, enda komst hann ekki sjálfur vegna vinnu.

„Hann sagði: „Viltu láta þá blessa barnið og fá mynd?“ Þannig að ég ákvað að taka sónarmyndina með til þess að fá þá til að árita hana,“ bendir hún á.

Viðbrögðin létu ekki á sér standa þegar myndin kom upp úr pússi hennar.

„Þeir voru báðir mjög hissa og sögðu að þetta væri örugglega í fyrsta og eina skipti sem þeir myndu gera þetta. Svo voru allir að hlæja, þannig að þetta vakti mikla lukku.“

Jón Gnarr og Sigurjón Kjartansson voru hissa þegar sónarmyndin kom fram og sögðu þetta örugglega vera í fyrsta og eina skipti sem þeir myndu árita slíka mynd. Ljósmynd/Aðsend

Tvíhöfði fylgt þeim frá upphafi

Þau Inga Lára og Þórir eru bæði dyggir aðdáendur Tvíhöfða en það var hann sem kynnti hana fyrir þáttunum þegar þau voru að kynnast.

„Þórir er svo mikill aðdáandi og sagði mér að hlusta á þættina. Síðan þá höfum við bæði verið að hlusta. Við fórum einmitt á afmælissýninguna hjá þeim þegar við vorum búin að þekkjast í mánuð eða svo.“

Það má því segja að Tvíhöfði hafi verið samofinn sambandi þeirra frá fyrstu tíð.

„Já, það er alveg hægt að segja það,“ segir hún og hlær.

Þórir komst ekki í fögnuðinn vegna vinnu og bað Ingu Láru að fá Tvíhöfða til að blessa barnið. Ljósmynd/Studioolender

„Fólk hélt að ég væri að grínast“

Nú eiga þau von á sínu fyrsta barni, stúlku sem er væntanleg í janúar, og er Inga Lára gengin þrjátíu vikur. Þau höfðu þó ekki greint frá gleðitíðindunum á samfélagsmiðlum þegar frétt Smartlands af árituðu sónarmyndinni birtist.

„Það var líka skemmtilegt í ljósi umfjöllunarinnar um Tvíhöfðabarnið að þá tilkynntuð þið í rauninni flestum sem þekkja okkur um óléttuna. Við vorum ekki búin að setja neitt á netið varðandi það, þannig að þetta var bara fínt.“

Fréttin kom mörgum á óvart og sumir áttu bágt með að trúa því að henni væri alvara.

„Fólk hélt að ég væri að grínast. Svo þegar það spurði hvað ég væri komin langt var það bara: „Í alvöru?““

Þau spöruðu sér því að útbúa sérstaka tilkynningu fyrir samfélagsmiðla og fóru þess í stað beint í fjölmiðla.

„Það er miklu betra og eftirminnilegra,“ bendir hún á.

Liverpool-bolur bíður dóttur Ingu Láru og Þóris sem er væntanleg í janúar. Samsett mynd/Ljósmynd/Studioolender

Sónarmynd við vögguna

Áritaða sónarmyndin gæti fengið heiðursstað við vöggu dótturinnar þegar þar að kemur.

„Við ætlum mögulega að fara með myndina í innrömmun og setja hana hjá vöggunni, þannig að hún alist upp við þetta og líka bolinn sem við létum árita.“

Aðdáunin hefur jafnvel komið við sögu í umræðum um barnanöfn. Þegar talið berst að því hvort nöfn á borð við Jóna eða Sigurjóna komi til greina kemur í ljós að Þórir hafði þegar hugleitt nafngift ef þau eignuðust dreng.

„Þórir var búinn að ákveða að ef þetta yrði strákur myndi hann heita Sigurjón Jón og gæti þá fengið áskrift að Tvíhöfða. En svo kemur Bjarnfreður auðvitað líka til greina.“

Næst á dagskrá er sýningin „Tvíhöfði – 30 ára brúðkaupsafmæli“ sem verður haldin í Eldborg í Hörpu 27. nóvember. Inga Lára ætlar ekki að láta sig vanta þótt styttist óðum í komu dótturinnar.

„Ég mun mæta þangað vaggandi inn,“ segir Inga Lára létt í lund að lokum.

Inga Lára og Þórir með hundunum þeirra en í janúar bætist lítil stúlka í hópinn. Ljósmynd/Studioolender

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅