Fjármálaráðherra sagði ósatt um Arion banka
Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra Morgunblaðsins, segir Arion banka hafa hafnað því að sambærilegt fyrirkomulag og viðhaft hefur verið við lokaða forfundi stjórnar Landsvirkjunar tíðkist hjá bankanum. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra nefndi Arion banka þegar Andrés óskaði eftir dæmum til stuðnings fullyrðingu ráðherrans um að slík vinnubrögð tíðkuðust í öðrum stjórnum ríkisfyrirtækja. Þar að auki er Arion banki ekki ríkisfyrirtæki.
„Svo ég hafði samband við Arion banka og þeir bara sögðu nei,“ segir Andrés í Spursmálum.
Þar ræða hann og Björn Ingi Hrafnsson Landsvirkjunarmálið, skýringar ráðherrans og ábyrgð hans á þeirri stöðu sem upp er komin hjá fyrirtækinu eftir brotthvarf Harðar Arnarsonar úr starfi forstjóra.
Andrés tók viðtal við Daða Má sem birtist í Morgunblaðinu 11. nóvember. Þar spurði hann meðal annars um lokaða forfundi stjórnar Landsvirkjunar fyrir formlega stjórnarfundi. Í spurningunni vísaði hann til þess að ekki væri víst að allir stjórnarmenn mættu, engar fundargerðir væru haldnar og dagskráin skipulögð öðruvísi en lög mæltu fyrir um.
Gat ekki nefnt ríkisfyrirtæki
Í viðtalinu sagði ráðherrann þessa aðferðafræði hafa verið að ryðja sér til rúms og tíðkast í öðrum stjórnum ríkisfyrirtækja. Þegar Andrés bað hann um að nefna þrjú dæmi nefndi hann Arion banka. Andrés benti þá á að ríkið ætti ekki bankann.
Ráðherrann sagðist að lokum ekki treysta sér til að nefna ríkisfyrirtæki þar sem þetta fyrirkomulag væri viðhaft. Hann hefði ekki spurt um það og byggi því ekki yfir þeirri vitneskju.
Í Spursmálum lýsir Andrés þessum orðaskiptum sem mjög einkennilegum. Hann hafi beðið ráðherrann um dæmi um sambærilega stjórnarhætti hjá öðrum ríkisfyrirtækjum, en ráðherrann ekki getað nefnt eitt einasta. Eftir að nafn Arion banka bar á góma hafi hann leitað svara þar og fengið neitandi svar.
Björn Ingi tekur undir gagnrýnina og segir fólk sem setið hafi í stjórn Landsvirkjunar telja vinnubrögðin fáheyrð og ekki hafa tíðkast þar áður.
Daði Már Kristófersson nefndi Arion banka sem dæmi um ríkisfyrirtæki sem viðhefði sömu stjórnarhætti og í Landsvirkjun. Arion banki er ekki í eigu ríkisins og þar eru stjórnarhættirnir með allt öðru móti. mbl.is/samsett mynd
Telur ráðherrann ekki hafa kynnt sér málið nægilega
Andrés segir í samtalinu að Landsvirkjunarmálið sé langt frá því að vera upplýst. Hann tekur fram að ráðherrann hafi veitt viðtöl og eigi það til hróss, en segir frásögn hans hafa breyst.
„Sagan hefur verið að breytast eilítið,“ segir Andrés og bætir við að sumt í svörum ráðherrans hafi bent til þess að hann væri ekki vel kunnugur öllum þáttum málsins.
Þegar svo mikið vandamál sé komið upp hefði ráðherrann átt að setjast niður og gaumgæfa hvað hefði gerst.
Andrés setur jafnframt spurningarmerki við að ráðherranum hafi verið ókunnugt um vandann þegar stjórnarhættir Landsvirkjunar hafi, samkvæmt umræðunni, verið ræddir níu sinnum. Það breyti ekki ábyrgð ráðherrans þótt hann hafi ekki sjálfur setið alla fundina.
„Það skiptir engu máli. Ég meina, ráðuneytið er ráðherrann.“
Hann bendir á að embættismenn tali og hlusti fyrir hönd ráðherrans. Á sama tíma og stjórnarhættir hafi verið ítrekað umræðuefni hafi forstjórinn ekki fengið færi á að koma áhyggjum sínum á framfæri við ráðherrann.
Andrés tekur þó sérstaklega fram síðar í samtalinu að hann sé ekki að draga heiðarleika Daða Más í efa. Vandinn sé að mál hafi ekki verið leyst og skýringar ráðherrans ekki verið nægilega góðar. Það hafi kostað hann traust.
Björn Ingi Hrafnsson og Andrés Magnússon ræða við Stefán Einar Stefánsson um málefni Landsvirkjunar. mbl.is/María Matthíasdóttir
Orðaskiptin í heild
Oðaskiptin um forfundina og samanburðinn við önnur fyrirtæki birtist með eftirfarandi hætti í Morgunblaðinu 11. nóvember:
Finnst þér eðlileg vinnubrögð hjá stjórn Landsvirkjunar að halda þessa lokuðu forfundi fyrir formlega stjórnarfundi, þar sem ekki er víst að allir mæti, engar fundargerðir eru haldnar, dagskráin skipulögð öðruvísi en lög mæla fyrir um og þar fram eftir götum?
„Þetta er aðferðafræði, sem hefur mjög verið að ryðja sér til rúms í stjórnum og tíðkast í öðrum stjórnum ríkisfyrirtækja.“
Geturðu nefnt þrjú dæmi um önnur ríkisfyrirtæki sem gera þetta? Vegna þess að ég skrifaði til þeirra ríkisfyrirtækja, þar sem stjórnin er skipuð með sama hætti, og spurðist nákvæmlega fyrir um hvort stjórnarhættir væru eins og hjá Landsvirkjun og öll sögðu nei.
„Ég veit að Arion banki er með þetta fyrirkomulag og …“
Ríkið á ekki Arion.
„Nei, nei, ég er bara að segja að þetta tíðkast. Þú baðst um dæmi og ég gaf þér dæmi.“
Þrjú ríkisfyrirtæki?
„Ég treysti mér ekki til þess, ég hef ekki spurt um þetta, þannig að ég bý ekki yfir þeirri vitneskju.“
Þú varst að segja að þetta tíðkaðist, eitthvað hlýturðu að hafa fyrir þér um það?
„Ég var að nefna þér dæmi.“
Ekki opinbert fyrirtæki
Þú nefndir mér eitt dæmi úr einkageiranum.
„Ja, hugmyndin er sú að þessar stjórnir starfi með hliðstæðum hætti og stjórnir almennra hlutafélaga.“
Það eru sérlög um Landsvirkjun og það er kveðið á um að stjórnin eigi sér stað á stjórnarfundum.
„Þetta eru ekki stjórnarfundir, þarna er verið að undirbúa fundina.“
Á ekki stjórnarformaður að gera það með forstjóra?
„Þetta þarftu að ræða við stjórn Landsvirkjunar.“
Hún veitir ekki viðtöl.
Viðtalið við Andrés og Björn Inga má sjá og heyra í heild sinni hér:
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
