Daníel Tristan: Alltaf verið að fylgjast með manni
Íslenska U21 árs landslið karla í fótbolta mætir jafnöldrum sínum í því gríska í fyrri leik liðanna í umspili um sæti á lokamóti EM sem fram fer á næsta ári. Liðin gerðu jafntefli í fyrri leiknum á fimmtudag, 1:1, og mætast aftur á morgun ytra.
„Ég hef mjög mikla trú á að við getum tekið þetta. Við höfum áður sýnt hversu góðir við erum, bæði á móti Frakklandi og Sviss. Ég hef því mjög mikla trú á þessu,“ sagði Daníel Tristan Guðjohnsen, framherji íslenska liðsins, við mbl.is.
Hann er spenntur fyrir því að spila á lokamóti fyrir Íslands hönd.
„Já, það væri mjög gaman, í raun alveg geggjað,“ sagði hann.
Mikill áhugi er á slíkum lokamótum og gætu nýjar dyr opnast fyrir Daníel sem leikur í dag með Malmö í Svíþjóð. Hann vill sýna sig og ná enn lengra.
„Já, hundrað prósent. Það er bara hluti af þessu. Það er alltaf verið að fylgjast með manni, sérstaklega á svona stórmótum,“ sagði Daníel.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗