Sögufrægur salur fær nýtt líf
Söngur, leikrit og jólamáltíðir fyrir þá sem minna máttu sín voru meðal þess sem setti svip á gamla samkomusal Hjálpræðishersins við Kirkjustræti. Salurinn er á jarðhæð gamla Herkastalans, sem var reistur árið 1916 og hefur því lengi verið vettvangur mannlífs og samveru. Nú er hann til leigu fyrir veislur og viðburði og gefst fólki þannig kostur á að fagna eigin tímamótum í þessari sögufrægu umgjörð.
Gestur Steinþórsson, sem rekur salinn og gistihús í gamla Herkastalanum, segir að salurinn hafi bæði verið vettvangur trúarlífs og hjálparstarfs, þar sem fólk kom saman við ólík tilefni.
„Þarna voru samkomur hjá hernum í gamla daga, söngur og leikrit. Fólk kom þarna á jólunum og fékk að borða ef það hafði ekki efni á mat. Það var mikið guðspjall þarna, sunnudagsmessur, sunnudagaskóli og margt fleira.
Það er því heilmikil saga sem fylgir húsinu. Nú geta nýir hópar komið saman í salnum, hvort sem um er að ræða fjölskyldutímamót, fundi, veislur eða menningarviðburði.“
Kastalinn hefur fengið að halda sínu gamla yfirbragði. Mikil lofthæð, parketlögð gólf og falleg vegglýsing setja svip á rýmið en sagan er ekki síður hluti af aðdráttaraflinu. Ljósmynd/Aðsend
Nóg pláss fyrir veislur og viðburði
Salurinn ber nafnið Kastalinn og hefur fengið að halda sínu gamla yfirbragði. Mikil lofthæð, parketlögð gólf og falleg vegglýsing setja svip á rýmið en sagan er ekki síður hluti af aðdráttaraflinu. Gestur segir gamla svipinn fara vel með þeirri notkun sem salnum er nú ætluð.
„Þetta er gamall, notalegur og sjarmerandi salur sem hefur fengið að halda útlitinu. Bæði staðsetningin og salurinn sjálfur henta vel fyrir alls kyns samkomur. Okkur langar að vekja athygli á því að nú geti hver sem er leigt hann fyrir eitthvert tilefni. Þetta geta verið fundir, erfidrykkjur, skírnir, fermingar eða bara einhvers konar veisla.“
Kastalinn er um 120 fermetrar og tekur allt að 80 manns í standandi veislu og 60 í sitjandi borðhaldi. Gengið er beint inn af Kirkjustræti og hægt að laga uppröðun borða og stóla að tilefninu hverju sinni.
Upphækkað svið er öðrum megin við salinn og þar er aðstaða fyrir ræðuhöld, tónlistarflutning, upplestra eða uppistand. Jafnvel er pláss fyrir litla hljómsveit. Hinum megin er upphækkað rými með sófum og hægindastólum sem nýtist sem setusvæði eða bar.
Hægt er að leigja salinn heilan eða hálfan dag og einnig á kvöldin en viðburðum lýkur í síðasta lagi klukkan ellefu vegna gistihússins í húsinu. Gestur segir fyrstu viðbrögðin við útleigunni lofa góðu.
„Við erum í rauninni bara búin að skrá okkur á salir.is og erum búin að fá alveg slatta af fyrirspurnum og einhverjar bókanir.“
Hægt er að leigja salinn heilan eða hálfan dag og einnig á kvöldin en viðburðum lýkur í síðasta lagi klukkan ellefu vegna gistihússins í húsinu. Ljósmynd/Aðsend
Gestir í gömlu herbergjunum
Gistihúsið sem rekið er samhliða er í gömlu herbergjum Hjálpræðishersins. Þar eru 51 herbergi, bæði eins, tveggja og þriggja manna herbergi auk fjölskylduherbergja. Gestur segir góða eftirspurn eftir einfaldri gistingu á viðráðanlegu verði.
„Það var nú ekki mikill íburður hjá Hjálpræðingum og þetta er gisting í ódýrari kantinum. Það er greinilega mikil eftirspurn eftir því og nýtingin hjá okkur er góð,“ segir Gestur.
Erlendir ferðamenn eru í meirihluta en Íslendingar hafa einnig sótt í gistihúsið, meðal annars sjómenn sem koma í land og fólk utan af landi sem á leið um höfuðborgina.
„Það kom mér eiginlega á óvart hvað það voru margir Íslendingar. Þetta er alls konar fólk sem býr úti á landi og er að ferðast, til dæmis á leið í flug frá Keflavík og gistir áður en það fer.“
Upphækkað svið er öðrum megin við salinn og þar er aðstaða fyrir ræðuhöld, tónlistarflutning, upplestra eða uppistand. Ljósmynd/Aðsend
Með gistihúsinu og útleigu salarins er aftur komin starfsemi í húsið eftir að það hafði staðið autt um tíma. Gestur segir ánægjulegt að fá að taka þátt í því.
„Mér finnst frábært að vera hluti af því að virkja húsið og búa til rekstur í hjarta miðbæjarins í svona sögufrægu húsi.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗



