Jökull hafi mikið að sanna eftir erfitt ár í Garðabænum

Helgi Fannar og Hörður Snævar fóru yfir allt það helsta í Íþróttavikunni á 433.is, eins og alla föstudaga.

Jökull Elísabetarson var kynntur sem nýr þjálfari Breiðabliks á dögunum. Hann spilaði með liðinu og varð Íslandsmeistari á leikmannaferlinum en hann þjálfaði síðast Stjörnuna.

„Hann fær þetta tækifæri sem er sennilega alveg verðskuldað en hann hefur rosalega mikið að sanna því þetta Stjörnudæmi var upp og ofan, við getum alveg verið heiðarlegir með það að þetta síðasta tímabil var algjört klúður. Það var öllu tjaldað til.

Hann er vel liðinn af stuðningsmönnum Breiðabliks svo ég held að hann fái meðbyr úr stúkunni til að byrja með,“ sagði Hörður.

„Hann var líka vinsæll á meðal flestra leikmanna Stjörnunnar og virðist vera vinsæl ráðning á meðal leikmanna Breiðabliks,“ sagði Helgi. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅