Ný skýrsla um Andrew Mountbatten-Windsor vekur reiði – Stjórnmálamenn krefjast aðgerða

Pressan

Sunnudaginn 15. nóvember 2026 09:30

Andrew Mountbatten-Windsor.

Ný skýrsla um Andrew Mountbatten-Windsor, sem hafði áður titil sem prins, hefur vakið mikla reiði og breskir stjórnmálamenn krefjast aðgerða.

Skýrslan snýst um húsnæði sem hann fékk til afnota hjá hirðinni. Sky News segir að Andrew hafi þénað sem svarar um 400.000 krónum á mánuði við að leigja þrjár íbúðir við Royal Lodge út. Þar bjó Andrew árum saman þegar hann var enn prins.

Það var bresk þingnefnd sem gerði skýrsluna sem var gerð opinber nýlega.

Skýrslan byggist meðal annars á bréfi frá James Chalmers, sem sér um bókhald Karls konungs. Bréfið var á sínum tíma sent til þingnefndarinnar.

Í því kemur fram að Andrew hafi leigt íbúðirnar út árið 2021 í tæpa tólf mánuði. Ekki kemur fram í bréfinu hversu miklar tekjur hann hafði af leigunni.

Þessar upplýsingar hafa orðið til þess að margir þingmenn hafa lagt til að algjört bann við að íbúar í húsnæði á vegum hirðarinnar geti framleigt það.

Andrew bjó í Royal Lodge í rúmlega tvo áratugi eða allt þar til fyrr á þessu ári þegar hann neyddist til að flygja eftir að hafa verið sviptur titlum sínum vegna tengsla hans við kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅