Handteknir fyrir líkamsárásir og hótanir
Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 15. nóvember 2026 09:20
Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti. Mynd: Eyþór Árnason
Erill var hjá lögreglunni á næturvaktinni og eru sex vistaðir í fangageymslu hjá stöð 1 eftir nóttina..
Í dagbók lögreglunnar kemur fram að lögreglustöð 1 handtók einn einstakling fyrir líkamsárás, hótanir, brot á lögreglusamþykkt og áfengislögum. Annar var handtekinn fyrir líkamsárásir, hótanir og brot á lögreglusamþykkt.
Tveir ökumenn voru handteknir fyrir fíkniefnaakstra. Annar þeirra jafnframt fyrir söludreifingu fíkniefna og peningaþvætti. Sá fjórði var handtekinn fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu.
Á lögreglustöð 2 voru þrír ökumenn handteknir fyrir fíkniefnaakstra. Þeir reyndust allir vera sviptir ökurétti.
Tveir ökumenn voru kærðir á lögreglustöð 3, annar fyrir að aka bifreið sviptur ökurétti og hinn fyrir að skilja bifreið sína eftir í lausagangi.
Á lögreglustöð 4 var ökumaður kærður fyrir að aka þannig að ökutæki hans missti veggrip og ökumaður handtekinn fyrir fíkniefnaakstur.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗