Rekinn eftir átök eiginkvennanna tveggja

Hossam Hassan er búinn að missa starfið sem landsliðsþjálfari Egyptalands.

Hossam Hassan er búinn að missa starfið sem landsliðsþjálfari Egyptalands. AFP/Buda Mendes

Egypska knattspyrnusambandið hefur rekið landsliðsþjálfarann Hossam Hassan í kjölfar deilna um einkalíf hans og ráðið Ali Maher í hans stað.

Deilan magnaðist í ágúst þegar Howaida Al-Gharbawi og Dina Mostafa, eiginkonur hans tvær, lentu í átökum á meðan hann var í fríi nálægt Alexandríu.

Nettavisen greindi frá því að báðar konurnar hefðu verið handteknar og að Hassan hefði hnigið niður þegar hann reyndi að skerast í leikinn og þurft á sjúkrahúsmeðferð að halda.

Fjölmiðlaeftirlit Egyptalands bannaði Hassan í kjölfarið að ræða deiluna opinberlega. Knattspyrnusambandið vísaði til „neikvæðra áhrifa á jákvæða ímynd og stöðugleika“ landsliðsins vegna málsins.

Hassan kom Egyptalandi í útsláttarkeppni heimsmeistaramótsins í fyrsta sinn í sumar, þar sem liðið tapaði 3:2 fyrir Argentínu í 16-liða úrslitum.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅