RAX með nýja ljósmyndabók
Ein þeirra ljósmynda sem prýða bók Ragnars Axelssonar. Morgunblaðið/RAX
Ragnar Axelsson ljósmyndari, RAX, hefur sent frá sér nýja ljósmyndabók er nefnist Veiðimaður frá Ittoqqortoormiit. Kom bókin fyrst út í París sl. fimmtudag á sýningunni Paris Photo.
Útgefandi er Qerndu á Íslandi og Kehrer Verlag dreifir bókinni um allan heim. Hún er fáanleg í forsölu en verður dreift í byrjun desember, segir í tilkynningu útgefanda.
RAX hefur ljósmyndað líf veiðimanna á Austur-Grænlandi í meira en þrjá áratugi. Bókin segir sögu Hjelmers Hammeken og samfélags þar sem veiðar og náin tengsl við náttúruna hafa mótað lífið um aldir. RAX kynntist Hjelmer fyrst árið 1992 í Ittoqqortoormiit, einu af afskekktustu byggðarlögum heims.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗