Merkileg gögn um geirfuglinn
Dagbækur breska náttúrufræðingsins Johns Wolleys frá Íslandsferð hans sumarið 1858 eru nú loksins komnar út á bók en tilgangur ferðarinnar var að finna geirfugl sem tókst þó ekki. Íslensku fræðimennirnir Gísli Pálsson og Már Jónsson ritstýra verkinu sem nefnist John Wolley’s Garefowl Books – The Aukward Birth of Anthropogenic Extinction. Útgefandi er Pelagic í Bretlandi.
Með Wolley í för var annar breskur náttúrufræðingur, Alfred Newton. Þekkt var þá að tveir geirfuglar hefðu verið drepnir í Eldey árið 1844 en talið var hugsanlegt að enn væri hægt að finna slíka fugla. Þeir félagar dvöldust í tæpa þrjá mánuði í Kirkjuvogi og nágrenni þar sem nú er byggðin í Höfnum á Suðurnesjum og ræddu ítarlega við heimamenn um geirfuglinn. Wolley hélt eins konar dagbækur í ferðinni þar sem hann skrifaði samtölin jafnharðan upp. Í handritun um eru einnig teikningar af Eldey frá ýmsum sjónarhornum og fuglum, bréf til annarra fræðimanna, ýmsar athugasemdir og jafnvel ættartré viðmælendanna.
„Þeir dvöldust hjá Vilhjálmi Hákonarsyni í Kirkjuvogi sem þekkti vel til og meðan Wolley og Newton voru á landinu voru um 20 karlar tiltækir ef viðra skyldi til siglingar út í Eldey. Presturinn í Útskálum var einnig mjög hjálplegur og fleira fólk. Úr varð merkilegt safn heimilda, hrá gögn, sem ekki snúa bara að geirfuglinum, heldur einnig sögu Suðurnesja á 19. öld,“ segir Már.
Þegar Gísli skrifaði bók sína um geirfuglinn, Fuglinn sem gat ekki flogið, sem kom út árið 2020, hafði hann pata af þessum gögnum en ýmsir höfðu vitnað til þeirra áður. Úr varð að hann fór til Cambridge en dagbækur Wolleys eru varðveittar á bókasafni háskólans þar og hófst handa við að skrifa þær upp eins og þær birtast – sem enginn hafði gert áður. Már kom svo fljótlega inn í það verkefni með honum.
Áhugi á geirfuglinum mikill
Spurður hvaða væntingar þeir hafi til útgáfunnar svarar Már: „Fyrst og fremst að bókin veki áhuga og umtal. Áhugi á geirfuglinum er mikill víða um heim og nær árlega koma út bækur sem fjalla um hann. Enda er hann hluti af mun stærra samhengi og á vissan hátt táknmynd fyrir þau náttúruspjöll sem orðið hafa af mannavöldum.“
Hann segir bókina í senn ætlaða leikum og lærðum. „Við vonumst til þess að bókin nýtist fólki, bæði fræðimönnum í þeirra starfi en líka almenningi til skemmtunar. Fuglaáhugi liggur svo víða, það eru fuglafrík út um allt. Þess vegna tekur forlagið þetta upp á sína arma.
Nánar er fjallað um bókina og rætt við Má í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
