„Við fengum loksins að uppfylla drauminn“
Dagur Snær Elísson og Kolfinna Þorvarðardóttir hafa farið til tólf landa saman og bættust nokkur lönd á listann á árinu 2026. Ljósmynd/Aðsend
Flugmaðurinn Dagur Snær Elísson og hjúkrunarfræðingurinn Kolfinna Þorvarðardóttir hafa verið saman í þrjú ár og hafa á þeim tíma ferðast mikið saman.
Þau fóru í síðbúið sumarfrí í haust og nýttu það til að fara eins langt frá Íslandi og mögulegt er. Kolfinna og Dagur segjast vera mjög ánægð með að eiga sér sameiginleg áhugamál í því að ferðast, kafa og skoða sjávarlíf.
„Við höfum heimsótt tólf lönd og áfangastaði víðs vegar um heiminn síðan við byrjuðum saman. Við höfum farið um víðan völl á þessu ári en meðal annars fórum við í sjö vikna ferðalag um Asíu og Ástralíu í byrjun árs. Svo nýttum við sumarfríið okkar í september og fórum í þriggja vikna ævintýraferð til Frönsku Pólýnesíu í Suður-Kyrrahafinu,“ segir Dagur Snær en ferðalagið hófst í San Francisco og þaðan flugu þau yfir til Frönsku Pólýnesíu.
„Við vörðum mestum tíma í Frönsku Pólýnesíu og stoppuðum svo við á Havaí áður en við héldum heim.“
Stórt ferðaár að baki
Hvort ykkar átti hugmyndina að þessum áfangastöðum?
„Það var í raun Kolfinna sem átti hugmyndina að Frönsku Pólýnesíu. Ég hafði satt best að segja aldrei heyrt um þennan stað áður en hún nefndi hann. Svo þegar við vorum að kafa á Balí fyrr á árinu kynntumst við kafara sem var á leið til Fönsku Pólýnesíu til að kafa og þá fórum við að skoða áfangastaðinn betur,“ segir hann.
„Okkur fannst þetta alveg ótrúlega spennandi áfangastaður, sérstaklega út af náttúrunni og öllu sjávarlífinu. Svo ákváðum við að nýta ferðalagið og bæta San Francisco og Havaí við í leiðinni,“ segir Kolfinna.
Hvernig skipulögðuð þið ferðalagið?
„Við höfðum verið að skoða möguleikann á þessari ferð í nokkra mánuði en skipulögðum hana svo með nokkuð stuttum fyrirvara þegar ljóst var að þetta yrði raunhæfur möguleiki fyrir okkur. Við vildum meðal annars tímasetja ferðina þannig að við næðum hápunkti hvalatímabilsins í Frönsku Pólýnesíu þar sem draumurinn var að fá að synda með hnúfubökum.
Við sáum sjálf um allt skipulagið enda finnst okkur ótrúlega skemmtilegt að skipuleggja ferðalög og finna út úr hlutunum sjálf. Við nýttum samfélagsmiðla og gervigreind, ásamt ráðleggingum frá fólki sem hafði ferðast um svipaðar slóðir. Það tók alveg sinn tíma að púsla þessu saman, enda margir áfangastaðir sem okkur langaði að heimsækja og ýmislegt sem þurfti að ganga upp. Með góðu skipulagi er margt hægt að gera á stuttum tíma! Það var líka stór hluti af skemmtuninni að undirbúa ferðina, sjá hana smám saman taka á sig mynd og verða að veruleika.
Það er líka skemmtileg staðreynd að ef við hefðum bætt við einu flugi frá Frönsku Pólýnesíu til Ástralíu þá hefðum við í raun farið heilan hring í kringum jörðina á þessu ári,“ segir hún.
Kolfinna hafði verið spennt fyrir því að fara til Frönsku Pólýnesíu og setti þar upp litríkan blómakrans sem er mjög hefðbundið að bera þar við fín tilefni. Ljósmynd/Aðsend
Ferðin hófst í San Fransisco þar sem þau stoppuðu við í þrjá daga til að skoða sig um og venjast tímamun. „Þar nutum við þess að vera komin í frí; borðuðum góðan mat og skoðuðum borgina. Við skoðuðum meðal annars Alcatraz-fangelsið sem var mjög áhugaverð og skemmtileg upplifun. Svo flugum við yfir til Tahítí og tókum þaðan ferju til Mo’orea. Sú eyja var klárlega einn af hápunktum ferðarinnar og í raun ein helsta ástæða þess að okkur langaði að fara til landsins. Við fengum loksins að uppfylla drauminn um að synda með hnúfubökum en þetta er einn af fáum stöðum í heiminum þar sem hægt er að upplifa það,“ segir Dagur Snær og bætir við að það hafi vakið upp ólýsanlegar tilfinningar að vera úti á opnu hafi með svona stórum dýrum.
„Við vorum svo heppin að sjá bæði fullorðna hvali og kálfa í mikilli nálægð, það er upplifun sem við munum aldrei gleyma. Við snorkluðum líka með hákörlum og vinalegum stingskötum.
Eyjan sjálf stóð líka algjörlega undir væntingum. Náttúran var mögnuð, grænir fjallstindar, mikill gróður og útsýnið stórbrotið hvert sem litið var. Það var eitthvað sérstakt við orkuna á eyjunni, bæði í menningunni og í samskiptum við fólkið. Ákveðin hlýja og ró yfir öllu sem okkur fannst gera Mo’orea sérstaklega eftirminnilega.“
Þau sáu alls kyns sjávardýr í Frönsku Pólýnesíu, bæði þegar þau köfuðu og snorkluðu en hápunkturinn var að sjá hnúfubaka. Samsett mynd
Hremmingar og tilviljanir neðansjávar
„Næst lá leið okkar til Bora Bora, sem er líklega þekktasta eyja landsins og sá staður sem maður hefur oft séð á myndum. Þar gistum við í fallegri villu við sjóinn, snorkluðum og nýttum tímann fyrst og fremst í að njóta þess að vera á þessum fallega stað og slaka á. Það er eiginlega ótrúlegt hvað sjórinn þarna er blár og tær.
Frá Bora Bora fórum við til Rangiroa, sem er kóralhringeyja með risastóru lóni og er sérstaklega þekkt fyrir köfun. Hún var frábrugðin eyjunum sem við höfðum heimsótt fram að því og við fórum þangað fyrst og fremst til að kafa. Við köfuðum meðal annars með höfrungum og hákörlum en á tímabili voru um 30 hákarlar fyrir neðan okkur.“ Dagur segir að á Rangiroa hafi þau lent í einni mestu tilviljun sem þau hafa upplifað á ferðalögum en það tengist inn í ferðalagið sem þau fóru í fyrr á árinu.
„Þegar við vorum að kafa á Balí fyrr á árinu lentum við í aðstæðum þar sem var mikill straumur og lélegt skyggni og Kolfinna varð viðskila við hópinn. Ég og leiðbeinandinn drifum okkur upp á yfirborðið og fórum upp í bátinn til að leita að henni, en hún var hvergi sjáanleg.
Við leituðum að henni í opnu hafi í um tuttugu mínútur áður en við fundum hana. Þetta var vægast sagt óþægileg upplifun. Sem betur fer hafði hún fundið tvo kafara neðansjávar og haldið sig með þeim þar til þau fundust. Annar þeirra er sá sem talaði svo um að hann ætlaði til Frönsku Pólýnesíu að kafa. Svo þarna, nokkrum mánuðum síðar, á Rangiroa, hittum við fyrir algjöra tilviljun þennan sama kafara! Okkur fannst það alveg ótrúlegt, sérstaklega þar sem Franska Pólýnesía samanstendur af 118 eyjum og það eru sex fyrirtæki sem bjóða upp á köfun á þessari eyju. Það voru því ansi litlar líkur á að við myndum hitta hann aftur en heimurinn er greinilega minni en maður heldur,“ segir Dagur Snær.
Hér er Kolfinna að kafa en hún hefur lent í miklum ævintýrum neðansjávar á þessu ári. Ljósmynd/Aðsend
„Að lokum eyddum við tveimur dögum í slökun á Tahítí en það er stærsta eyjan í Frönsku Pólýnesíu og helsta miðstöð flugsamgangna. Þaðan héldum við svo áfram til Havaí og eyddum nokkrum dögum á Oahu. Þar nutum við þess að slaka á nálægt Waikiki-ströndinni og skoða okkur um. Við leigðum okkur jeppa og tókum heilan dag í að keyra um eyjuna, skoða fallegar strendur og stoppa í litlum bæjum á norðurströndinni. Það var mikil tilbreyting að koma til Bandaríkjanna eftir að hafa ferðast um afskekktar eyjur í Suður-Kyrrahafi. Mjög skemmtilegur endir á ferðinni og allt öðruvísi upplifun,“ segir Kolfinna.
Var eitthvað sem kom ykkur á óvart á þessu ferðalagi?
„Já, aðallega hversu ólíkar eyjarnar í Frönsku Pólýnesíu eru, hver eyja hefur sinn sjarma og sína sérstöðu. Mo’orea var ævintýraleg. Bora Bora einkenndist meira af afslöppun og lúxus á meðan Rangiroa var algjör paradís fyrir okkur sem höfum áhuga á köfun og sjávarlífi. Þannig var upplifunin mjög ólík eftir eyjum, þótt þær væru allar ótrúlega fallegar á sinn hátt. Svo var auðvitað alveg ótrúlegt að hitta aftur kafarann frá Balí á Rangiroa,“ segir hún.
Dagur og Kolfinna hvetja hvort annað og styðja þegar þau eru að prófa nýja hluti. Hér eru þau spennt á leið í köfun. Ljósmynd/Aðsend
Stefna á Maldíveyjar
Langar ykkur að gera meira af því að skoða framandi sjávarlíf?
„Já, klárlega! Við höfum bæði mikinn áhuga á sjávarlífi og finnst mjög gaman að snorkla, en það er þó köfunin sem heillar okkur mest. Við erum bæði með köfunarréttindi sem við fengum í Taílandi og höfum verið dugleg að kafa á ferðalögum okkar. Dagur er kominn með um þrjátíu kafanir víðs vegar um heiminn og ég nítján.
Það er eitthvað alveg sérstakt við að fara undir yfirborðið og upplifa allt aðra veröld. Að fá að sjá hákarla, höfrunga, skötur og alls konar sjávarlíf í sínu náttúrulega umhverfi er eitthvað sem við fáum seint leið á. Okkur dreymir meðal annars um að fara í svokallaða „liveaboard“-köfunarferð á Maldíveyjum, þar sem maður býr um borð í báti og ferðast á milli mismunandi köfunarstaða. Galápagoseyjar eru líka mjög ofarlega á listanum en það getur verið krefjandi að kafa þar og hentar frekar reyndari köfurum. Það væri því eitthvað sem okkur langar að stefna á þegar við verðum orðin enn reyndari,“ segir Kolfinna.
Hvernig horfið þið til baka á ferðalagið?
„Fyrst og fremst erum við ótrúlega ánægð með að hafa látið verða af þessu. Okkur finnst mjög dýrmætt að geta upplifað allt þetta saman, vera samstíga og tilbúin að prófa nýja hluti og ýta okkur aðeins út fyrir þægindarammann. Það er ekki sjálfgefið að hafa sömu áhugamál og vera jafn tilbúin að takast á við nýjar upplifanir og það finnst okkur gera ferðalögin okkar enn skemmtilegri.
Ferðalög gefa okkur svo miklu meira en fallegar myndir og góðar minningar. Það að kynnast nýju fólki og menningu, sjá hvernig fólk lifir annars staðar í heiminum og upplifa hluti sem maður er ekki vanur, fær mann til að sjá heiminn með öðrum augum og öðru hugarfari.
Ferðin minnti okkur líka á hvað við megum vera þakklát fyrir það sem við höfum og þau tækifæri sem okkur gefast. Maður áttar sig á því hvað heimurinn er stór en á sama tíma er allt svo opið og mögulegt. Þessi ferð var klárlega ein af eftirminnilegustu ferðum okkar hingað til og hefur gefið okkur enn meiri löngun til að halda áfram að kanna heiminn í framtíðinni,“ segir Kolfinna en aðspurð segir hún að það séu margir staðir á þeirra óskalista. „Okkur langar meðal annars að heimsækja Japan og Suður-Kóreu. Við erum þó líklega komin í smá pásu frá svona löngum ferðalögum í bili enda höfum við verið mjög dugleg á þessu ári. Draumurinn er klárlega að halda áfram að kanna heiminn á næstu árum.“
内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗





