Fagnar sex ára hjónabandi með tuskudúkku – Framhjáhald og hjónabandsráðgjöf
Pressan
Sunnudaginn 15. nóvember 2026 08:30
Meirivone og eiginmaðurinn.
Í mörgum hjónaböndum eru góðir tíma og svo aðrir sem eru ekki eins góðir. Hin brasilíska Meirivone Rocha Moares hefur upplifað eitt og annað með manninum sínum en hann er tuskudúkka sem móðir hennar saumaði handa henni.
Moraes komst nýlega í fréttirnar, og það ekki í fyrsta sinn, þegar hún fagnaði sex ára hjónabandi með tuskudúkkunni sem ber nafnið Marcelo og er því ekki af holdi og blóði, heldur úr efni og tróði.
Í tilefni af brúðkaupsafmælinu birti hún mynd á Instagram og lýsti yfir ást sinni á eiginmanninum. „Í dag fögnum við sex ára ást. Ástin mín, þú varst og munt alltaf verða besta ákvörðun lífs míns. Þúsund þakkir fyrir að vera hluti af lífi mínu,“ skrifaði hún að sögn LADbible.
En þrátt fyrir að færslan sé mjög rómantísk þá hafa árin sex ekki verið eintómur dans á rósum.
Byrjaði með dansi
Saga Meirivone og Marcelo hófst þegar hana vantaði dansfélaga. Móðir hennar ákvað þá að taka málin í sínar hendur og saumaði tuskudúkku á stærð við manneskju sem dóttirin gat dansað við.
Dúkkan fékk nafnið Marcelo og Meirivone varð greinilega svo hrifin af dansfélaganum að sambandið breyttist fljótlega í meira en bara dans.
Hún hefur verið iðin við að deila upplýsingum um líf þeirra á samfélagsmiðlum og er hún með 174.000 fylgjendur á Instagram.
Þar segir hún frá hjónabandinu, fjölskyldulífinu og þeim áskorunum sem fylgja því að vera gift manni sem er í bókstaflegri merkingu búin til úr vefnaðarvöru.
Þrátt fyrir að Marcelo líkist kannski ekki manngerðinni sem fer fyrirvaralaust út að skemmta sér eða sendir skilaboð til annarra kvenna, þá hefur Meirivone ítrekað sakað hann um framhjáhald. Hún hefur raunar lýst honum sem alræmdum framhjáhaldara.
„Að vera gift tuskudúkku er ekki eins frábært og fólk heldur kannski,“ sagði hún í samtali við Now to Love.
Hún segist hafa fyrirgefið Marcelo af því að þau hafi stofnað fjölskyldu saman. Hún játar þó að þolinmæði hennar sé næstum á þrotum. „Hann segist ætla að taka sig á en ég trúi því ekki.“
Þrátt fyrir að þetta kunni að hljóma eins og eitthvað úr grínmynd þá hefur Meirivone margoft sagt að hún beri raunverulegar tilfinningar til Marcelo.
Hún veit mætavel að hann er ekki lifandi manneskja en hefur einnig sagt að hún telji hann hafa sál.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗