Kvaddi föður sinn með hjartnæmum orðum
Sænska skíðaskotfimikonan Linn Gestblom, 32 ára, hefur greint frá andláti föður síns, Sven-Eriks, sem var með krabbamein í brisi.
„Snemma í morgun sofnaði elskulegur faðir minn,“ skrifaði hún á Instagram og deildi ljósmynd af honum í skógi ásamt broti úr ljóði Gunnars Ehne, Kvällsböna.
Gestblom greindi frá veikindum hans síðasta sumar. „Ef hægt hefði verið að vinna þessa baráttu með viljastyrk veit ég að pabbi hefði staðið uppi sem sigurvegari,“ skrifaði hún þá.
Andlátið kemur aðeins nokkrum vikum eftir að Gestblom tilkynnti að hún væri barnshafandi og ætti von á sínu fyrsta barni snemma á næsta ári.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗