Réðust á bandaríska herstöð
Sprengingar og loftvarnaflautur heyrðust víða í eyríkinu Barein í nótt og hvöttu yfirvöld íbúa til að leita skjóls eftir að írönsk yfirvöld tilkynntu árás á bandaríska herstöð í Persaflóaríkinu.
Viðvörunarflautur ómuðu, að sögn blaðamanns AFP, á meðan yfirvöld birtu nokkrar viðvaranir á samfélagsmiðlum án þess að tilgreina hvaðan ógnin stafaði.
Innanríkisráðuneytið hvatti „íbúa til að halda ró sinni, fara á næsta örugga stað og fylgjast með fréttum í gegnum opinberar rásir til að tryggja almannaöryggi“.
Sprengingar heyrðust um klukkan 4 og 6.30 í nótt að staðartíma.
Byltingarvörðurinn í Íran sagði sveitir sínar hafa gert drónaárás á bandarískt ratsjárkerfi í herstöð í Barein, samkvæmt yfirlýsingu sem íranska ríkisútvarpið birti á sunnudag.
„Loftvarnaratsjárkerfi Bandaríkjanna í Al-Riffa-þyrlustöðinni í Barein varð fyrir árás sex dróna í eigu loft- og geimhers Byltingarvarðarins,“ sagði Byltingarvörðurinn í yfirlýsingu sem ríkisútvarpið birti á Telegram.
„Hormússund er lokað og allri árásargirni af hálfu bandaríska óvinarins verður svarað með enn harðari og öflugri hætti,“ sagði þar enn fremur.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗