Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Biskup slær í gegn

Pistlahöfundur hefur undanfarið verið að lesa sér til skemmtunar og fróðleiks hina stórgóðu og fjörlegu bók Halldórs Guðmundssonar Líf í bókum, sem er saga íslenskra bókmennta frá upphafi til vorra daga. 

Á einum stað í verkinu segir Halldór stuttlega frá séra Sigvalda í skáldsögunni Manni og konu eftir Jón Thoroddsen, en sá eftirminnilegi prestur varð fyrirmynd margra illra presta í íslenskum skáldsögum.

Vondir prestar lífga svo að segja alltaf upp á skáldverkið sem þeir eru staddir í, gera það enn áhugaverðara en ella og því meiri skaða sem þeir valda því betra fyrir lestrarupplifunina. Þessu er allt öðruvísi farið í raunveruleikanum. Vondur prestur í raunheimum kætir engan heldur getur meitt og sært ógurlega, svo ekki sé talað um öll þau ósköp sem hljótast af vítaverðu framferði vonds biskups.

Íslenska þjóðkirkjan skiptir blessunarlega enn máli í íslensku samfélagi og það skiptir máli hvernig prestar haga sér. Biskup landsins gegnir veigamiklu embætti og með góðri frammistöðu eykur hann veg kirkjunnar og kristninnar.

Í þessum efnum hefur núverandi biskup ekkert að óttast. Guðrún Karls Helgudóttir er að slá í gegn hjá stórum hluta þjóðarinnar. Það sýndi sig í kjölfar sjónvarpsþáttar á RÚV þar sem Guðrún talaði á afar einlægum nótum, bæði sem manneskja og biskup. Netverjar, sem ætíð hafa unun af að koma skoðunum sínum á framfæri, þutu til og dæmdu frammistöðu hennar. Samfélagsmiðlar loguðu – að þessu sinni af ánægju – eins og dv.is sagði skilmerkilega frá í stórri frétt þar sem birt voru mörg lofsamleg ummæli um biskupinn. Einhverjir sem vitnað var í sögðust hafa sagt sig úr þjóðkirkjunni á sínum tíma en snúið aftur þangað eftir að Guðrún varð biskup.

Það eru samt ekki allir jafn ánægðir með biskupinn. Pistlahöfundur hefur á ævi sinni umgengist marga einstaklinga sem eru afar hægri sinnaðir, mun meira en þeim er sjálfum hollt. Ýmsir þeirra lýsa lítilli hrifningu á Guðrúnu biskupi og eru tortryggnir í hennar garð. Það er næstum eins og þeim finnist að hún geti ekki verið alveg sannkristin þar sem hún sé svo áberandi frjálslynd.

Bæði í predikunum og tali hefur Guðrún biskup lagt mikla áherslu á kærleiksboðskapinn. Ekki veitir af í heimi þar sem einstaklingar spúa allt of oft út úr sér hatri og dæma fólk hart vegna þjóðernis þeirra eða trúar.

Allt í kringum okkur sjáum við einstaklinga sem vara við fólki af ákveðnu þjóðerni sem aðhyllast aðra trú en okkar. Spjótum er einkum beint að múslimum og þar er alhæft alveg villt og galið. Þetta gengur svo langt að stundum er engu líkara en verið sé að setja samasemmerki milli múslima og glæpamanna. Samkvæmt því er hinn dæmigerði múslimi eins konar gangandi tímasprengja.

Margir þeirra sem ýja að því að hætta stafi af múslimum, eða segja það hreinlega berum orðum, telja sig vera sannkristna og vilja veg kristninnar sem mestan. Þeim væri hollt að leggjast í sjálfskoðun og íhuga hvort það geti verið að eitthvað mikilvægt í kristnum boðskap hafi farið illilega fram hjá þeim. Eins og til dæmis boðskapurinn um náungakærleikann.

Þegar Kristur mælti orðin: „Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig“ setti hann ekki á langa ræðu um það hvaða náungi væri þess verðugur að vera elskaður. Hann sagði ekki að náunginn ætti allra helst að vera af sama þjóðerni og maður sjálfur, deila trúarskoðunum manns og vera í flestum aðalatriðum sammála manni.

Náungakærleikurinn snýst ekki um þjóðerni eða trú. Hann snýst um hlýju, skilning, samkennd og umburðarlyndi. Hann á alltaf erindi. Ef ekki er pláss fyrir náungakærleika þá er ekki mikið eftir af kristnum boðskap og gildum.

Við eigum biskup sem ætíð talar máli kærleikans og lítur á það sem skyldu kirkjunnar að standa með mannréttindum allra hópa. „Jesús gerði það,“ sagði Guðrún biskup í viðtalinu á RÚV. 

Við erum heppin að eiga góðan biskup sem mun halda áfram að minna okkur á að kærleikur, umburðarlyndi og mannúð eru órjúfanlegur hluti af kristinni trú.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅