Allir drónar bannaðir

Dróni á flugi. Myndin er úr safni.

Dróni á flugi. Myndin er úr safni. AFP

Bann kínverskra yfirvalda við vörslu dróna í höfuðborginni Peking tók gildi í dag.

Bannið nær bæði til þéttbýlis og dreifbýlis í sveitarfélaginu, sem er um 16.400 ferkílómetrar.

Bannið, sem yfirvöld tilkynntu í september, leggur bann við því að eiga og geyma ómönnuð loftför til að „tryggja öryggi höfuðborgarinnar“.

Einnig var bannað að flytja dróna eða íhluti þeirra inn í borgina.

Eigendur hafa neyðst til að losa sig við tæki sín áður en bannið tók gildi í dag en þeir gátu einnig flutt þau út fyrir bannsvæðið.

Eiga yfir höfði sér sekt 

Bannið kemur í kjölfar þess að áhyggjur af öryggi í lofthelgi vöknuðu í júní þegar lítil flugvél brotlenti á hæsta skýjakljúfi borgarinnar, með þeim afleiðingum að flugmaðurinn lést og 13 aðrir slösuðust.

Peking hafði þegar bannað sölu dróna í maí en eigendum var þá gert að skrá tæki sín hjá yfirvöldum og þeim leyft að halda þeim.

Nú á hver sá sem hefur dróna í fórum sínum yfir höfði sér sekt og upptöku búnaðarins.

Undanþágur fyrir drónaflug kunna að vera veittar af tilteknum ástæðum, svo sem vegna hryðjuverkavarna, löggæslu, neyðaraðstoðar, landbúnaðar eða vísindarannsókna.

Drónar hafa orðið afar vinsælir í Kína á undanförnum árum, einkum til að kvikmynda landslag.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅