Í skiptum fyrir Vadim Krasikov
Sasha er í útlegð í Berlín og er ekki á leið til Rússlands aftur eftir sjö ára fangelsisdóm í ríki Pútíns. mbl.is/Eyþór
„Síðustu árin mín í Rússlandi var ég neðanjarðartónlistarkona og neðanjarðarlistakona. Fjölskylda mín var sárafátæk, við bjuggum í félagslegri íbúð með um það bil tíu öðrum fjölskyldum,“ segir Aleksandra Júríevna Skotjílenkó í samtali við Morgunblaðið, í stuttu máli einfaldlega kölluð Sasha sem er líka listamannsnafn hennar í Rússlandi.
Við köllum hana Söshu í þessu viðtali, spörum plássið þegar voldug rússnesk nöfn eru annars vegar. Sasha er fædd og hefur alið sinn aldur í Sankti Pétursborg, fæddist raunar haustið 1990 og náði því að búa fyrstu mánuði ævi sinnar í hinni fornfrægu Leníngrad eins og borgin hét árabilið 1924 til 1991.
En Sasha býr ekki lengur í Leníngrad. Hún er í útlegð í Berlín í Þýskalandi með löndu sinni, umboðsmanni og eiginkonu Sofiu Subbotinu. Sasha var handtekin vorið 2022 fyrir að dreifa áróðri gegn innrás Vladimírs Pútíns forseta í Úkraínu, dæmd til sjö ára fangelsisvistar með stoð í rússnesku falsfréttalögunum, en slapp með tvö og hálft ár í fangelsi sem var ekkert sérstaklega huggulegt.
Þitt nafn bjargar lífi
Í þessu viðtali eru Sasha og Sofia raunar staddar í íbúð við Þingholtsstræti í Reykjavík, langa vegu frá fangaklefum Pútíns. Mannréttindasamtökin Amnesty International lýstu Söshu samviskufanga á sínum tíma og gott fólk barðist með klóm og kjafti fyrir að fá þennan þekkta listamann í Sankti Pétursborg leystan úr haldi.
Það tókst 1. ágúst 2024 þegar Sasha, stjórnarandstæðingurinn og blaðamaðurinn Vladimir Kara-Murza, stjórnarandstæðingurinn Iilya Yasjín, bandaríski blaðamaðurinn Evan Gerskovitsj og fleiri voru látin laus í fangaskiptum við vestræn ríki þar sem þyngsta skiptimyntin kom frá Berlín, rússneski FSB-leyniþjónustumaðurinn og leigumorðinginn Vadim Krasikov sem Þjóðverjar handtóku fyrir víg georgíska Téténans Selimkhans Khangosviljís í Berlín árið 2019.
Sasha er nú hingað komin á vegum Íslandsdeildar Amnesty International í tengslum við 25 ára afmæli herferðarinnar Þitt nafn bjargar lífi, en mál hennar var hluti af þeirri herferð árið 2022. Afmælishátíðin Sláum taktinn – listræn samstaða fer fram í Hörpuhorni Hörpu á morgun, sunnudag, klukkan 17, og flytur Pussy Riot-liðsmaðurinn Diana Burkot þar listrænan gjörning auk þess sem Agnès Callamard, aðalframkvæmdastjóri Amnesty International, verður heiðursgestur.
Fjölbreyttur hópur listafólks kemur fram og stóru, gulu og sláandi hjarta verður varpað á framhlið Hörpu, en hjartað er táknmynd herferðarinnar í ár og endurspeglar þann kraft sem býr í samstöðu fólks. Í ár beinist herferðin að málum átta einstaklinga sem sæta alvarlegum mannréttindabrotum víða um heim. Íslendingar geta lagt sitt af mörkum með því að skrifa undir áköll til stjórnvalda og sýna þolendum mannréttindabrota samstöðu.
Í fangelsinu SIZO-5
„Foreldrar mínir eru upprunalega frá Sakalín [stærstu eyju Rússlands, undan austurströnd Síberíu], þau fluttu ung til Sankti Pétursborgar [þá Leníngrad] til þess að læra og verða listamenn, en því miður hófu þau barneignir strax og fengu ekki tækifæri til að láta draumana rætast, þau urðu að ala önn fyrir börnunum, draumar þeirra koðnuðu niður,“ segir Sasha með angurværum raddblæ og augljóst að hugurinn leitar til baka til æskuáranna. Hún er vel mælt á ensku, kímnigáfan á sínum stað og þessi viðmælandi er ekki að velta sér upp úr eigin örlögum eftir fangelsisvist fyrir hlægilegar sakir, hugur hennar er hjá nágrönnunum í Úkraínu sem hafa mátt þola ofríki rússneskra stjórnvalda.
Sasha sat í gæsluvarðhaldsfangelsinu SIZO-5 í borg heilags Péturs sem betur er í daglegu tali þekkt sem „Arsenalka“ þar sem það stendur við götuna Arsenalnaya, skammt frá hinu sögufræga og illræmda Kresty-fangelsi við ána Nevu.
Segðu mér frá dvölinni í fangelsinu.
„Í byrjun var hún hryllilega þungbær. Ég er með glútenóþol og þarf að vera á sérstöku mataræði sem er flókið, en ekkert stórmál þegar ég er frjáls manneskja. Fangelsið bauð ekki upp á þetta mataræði. Ég fékk mat sem líkami minn gat ekki melt. Hefði ég setið þarna árum saman hefði það eyðilagt mig í maganum,“ svarar Sasha sem á sínum tíma hóf nám í kvikmyndaleikstjórn, en tónlistin seiddi hana til sín.
„Það var ekki vegna peninga eða til að verða fræg, ég bara varð að búa til tónlist,“ segir rússneska andófskonan dreymin, kona sem bauð Pútín birginn og var látin laus í skiptum fyrir eitt alræmdasta illmenni rússneska forsetans. „Ég var líka mikið fyrir að teikna og árið 2014 sendi ég frá mér litla teiknimyndasögu um þunglyndi sem sló í gegn í Sankti Pétursborg,“ bætir hún við.
Þú ert á kafi í listaheiminum og neðanjarðartónlistarsenunni í borginni, svo ræðst Rússland á Úkraínu. Hvað gerðist?
„Ég á vini af mörgum þjóðernum, ég á marga vini í Úkraínu og teiknimyndasagan mín kom líka út á úkraínsku,“ svarar listakonan. „Árið 2019 fór ég til Kænugarðs. Mig fýsti að sjá þessa borg og hvernig þarna væri umhorfs. Rússneskur áróður var á þá leið að allir Úkraínumenn hötuðu Rússa. Ég upplifði ekki það hatur. Ég vann sem barnaráðgjafi í barnabúðum í Úkraínu og allt í einu heyrum við [í febrúar] árið 2022 að Rússar séu að varpa sprengjum á Kænugarð,“ rifjar hún upp.
Verðmiðaverkefnið dýrkeypta
„Ég þekkti börn þarna, ég gat ekki bara þagað og látið eins og ekkert væri. Þetta fólk hafði ekkert gert á hlut Rússa og allt í einu var það að hlaupa í skjól undan sprengjum og drónum,“ segir Sasha og hækkar ekki röddina um eina áttund. Jafnaðargeð manneskju sem hefur horfst í augu við verstu hliðar Rússlands Pútíns.
Og Sasha þagði ekki. „Ég tók þátt í hreyfingu sem laumaði skilaboðum á verðmiða á vörum í búðum, við skrifuðum skilaboð á borð við að núna leituðu 400 manns skjóls undan sprengjuregni í listaskóla í Maríupol [í Úkraínu]. Svo var ég handtekin. Kona í einni búðanna tilkynnti skilaboðin til lögreglu og lögreglan fann mig strax með efni úr öryggismyndavélum. Í Rússlandi eru öryggismyndavélar alls staðar, stjórnvöld fylgjast með öllum,“ segir rússneski gesturinn.
Svo fór að hún var nörruð heim til vinar síns. Lögreglan var þá komin þangað og neyddi hann til að hringja í Söshu og biðja hana að koma. Þar var hún handtekin og í kjölfarið dæmd í sjö ára fangelsi fyrir skilaboð um Úkraínustríðið á verðmiðum í verslunum.
Hvað ætlarðu að segja í ávarpi þínu í Hörpu?
„Það veit ég ekki,“ segir Aleksandra Júríevna Skotjílenkó og hlær af hjartans lyst. Meira af þessari sögu á mbl.is núna um helgina.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗