Stjórnaði af ástríðu og andagift
Högni Egilsson frumflutti verkið ANOK í Hallgrímskirkju við mikla hrifningu rýnis Morgunblaðsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Það er alltaf jafn magnað að koma inn í Hallgrímskirkju upp á tónleika að gera. Stærðin á rýminu og saga byggingarinnar setur mann ósjálfrátt í stellingar, maður hvílist eiginlega, róast og hverfur inn í þá helgi sem þarna er yfir.
Kirkjan var þess vegna fullkominn staður, griðland, fyrir frumflutning á ANOK, sem er nýtt verk eftir Högna Egilsson. Flytjendur, undir stjórn tónskáldsins, voru sönghópurinn Cantoque Ensemble, slagverksleikarinn Frank Aarnink, organistinn Lára Bryndís Eggertsdóttir og einsöngvarinn Hallveig Rúnarsdóttir. Tónleikarnir voru samstarf Cantoque Ensemble, Iceland Airwaves og Hallgrímskirkju.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗